158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[19:06]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sína og þær hugleiðingar sem hún hafði. Hún var að kalla dálítið eftir gögnum og greiningum, ekki síst þegar kemur að bankaskattinum. Ég hef velt því fyrir mér hvort þingmaðurinn hafi lesið skýrsluna sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, lét gera um hvernig lækkun á bankaskatti hefði skilað sér þegar skatturinn var lækkaður árið 2020. Ég er nú bara búin að skima þessa skýrslu en þegar ríkisstjórnin þáverandi lækkaði bankaskattinn var auðvitað búið að segja að lækkunin myndi skila sér til viðskiptavina og þessi skýrsla var unnin af nefnd þar sem m.a. áttu sæti fulltrúar frá SFF og fleirum, mikilsvirt fólk. Niðurstaða þessarar nefndar sem birtist í skýrslunni var sú að ávinningurinn af lækkun bankaskattsins skilaði sér ekki til viðskiptavina. Það auðvitað vekur athygli. Nú erum við að ræða það og þetta er eitt af því sem við munum ræða í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og ég heyri það að mörgum þingmönnum þykir það eðlilegt að bankarnir velti þessu yfir á viðskiptavini. Mér finnst það alls ekki eðlilegt. Mér finnst að við lifum í samfélagi og mér sem jafnaðarmanni finnst bara eðlilegt að við hugsum þetta þannig að við berum ábyrgð hvert á öðru. Viðskiptavinir íslensku bankanna eru íslensk heimili og íslensk fyrirtæki og mér finnst ekkert óeðlilegt að fjármálafyrirtæki landsins komi með stjórnvöldum og haldi í sér þessari þörf fyrir að velta þessu yfir á viðskiptavini. (Forseti hringir.) Mig langar að velta þessum hugleiðingum til hv. þingmanns.