breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að bæta við þetta aðeins þannig að þeir sem kunna að vera að hlusta á geri sér kannski einhverja grein fyrir stærðunum í þessu. Það var sólarhringsverkfall árið 2014. Þá féllu niður 65 flug þannig að ég hygg að það geri sér allir sem kynna sér þessar tölur grein fyrir því hversu hratt þetta mun skekkja allar væntingar ríkisstjórnarinnar til tekjuöflunar.
Það er annað sem mig langar að nefna hér sem kom fram fyrr í dag í máli hv. þm. Sigríðar Á. Andersen, og ég hygg að ef ég man þetta rétt hafi ég átt einhver orðaskipti við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur um það hvort hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir hefði áhyggjur af þessu, sem varðar það að tekjuskattur einstaklinga, eins og þetta er að þróast núna og hefur náttúrlega verið að gera í langan tíma, stendur ekki lengur undir millifærslukerfinu. Ég get ekki með nokkru móti séð og skil ekki, hvort sem það er ríkið, heimili, einstaklingur eða fyrirtæki, að ef þessi skattstofn stendur ekki lengur undir greiðslunum úr kerfinu þá hljótum við að vera á mjög vondum stað. Við erum þá farin að treysta á alla hina skattana til að gera allt hitt, hvort sem það heitir uppbygging innviða, sem er mjög í tísku að nota núna, vegakerfið, heilbrigðiskerfið, framhaldsskólarnir, grunnskólarnir og svo mætti áfram lengi telja. Það er ekkert aflögu frá hinum vinnandi stéttum til að standa undir því það stendur ekki einu sinni undir millifærslukerfi.