158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:38]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Um fiskeldi eru sterkar og ólíkar skoðanir í samfélaginu okkar en óháð afstöðu til greinarinnar þá hljótum við að geta verið sammála um eitt: Þegar teknar eru stórar og langvarandi ákvarðanir um nýtingu náttúruauðlinda Íslands þá þarf stjórnsýslan að vera skotheld. Ríkisendurskoðun benti árið 2023 á verulega ágalla þegar kom að stjórnsýslu og eftirliti með sjókvíaeldi og lagði fram fjölmargar ábendingar um betrumbætur. Nú, þremur árum síðar, er verið að gefa út fleiri langtímaleyfi og því hlýtur að vera eðlilegt að spyrja: Hvar stöndum við miðað við þessar ábendingar? Hvað hefur verið bætt?

Ég nefni tvö dæmi varðandi nýjasta leyfið sem ég er hugsi yfir. Í fyrsta lagi á samkvæmt lögum að endurskoða áhættumat erfðablöndunar svo oft sem þörf er á en eigi síðar en á þriggja ára fresti. Sú endurskoðun virðist ekki hafa verið sett fram eða staðfest af ráðherra innan þessa frests er nýjasta leyfið varðar og ef eldra mat heldur gildi sínu þar til nýtt er lagt fram þá má spyrja sig: Hvaða hvatar eru til að þessi endurskoðunarskylda haldi í reynd? Í öðru lagi benti þáverandi Skipulagsstofnun árið 2024 á að móta þyrfti skýran ramma um áhættumat vegna náttúruvár á strandsvæðum. Það liggur ekki fyrir hvernig ráðherrar eða ríkisstjórn hafa brugðist við þessum ábendingum.

Virðulegi forseti. Við starfsmenn stofnana er ekki að sakast. Þeir starfa eftir gildandi lögum og reglum hverju sinni en ábyrgðin hvílir á herðum ráðherra. Hún hvílir þar þrátt fyrir að það hafi ekki tekist að koma frumvarpi um breytingar í gegn í fyrsta skiptið og það þarf að standa undir henni. Það er sanngirnismál fyrir fyrirtæki sem þurfa stöðugleika í lagaumgjörð. (Forseti hringir.) Það er sanngirnismál fyrir sveitarfélög sem bera ólíkar væntingar til þessarar greinar (Forseti hringir.) og ekki síst fyrir náttúruna sem við berum sameiginlega ábyrgð á. Við þurfum ekki að vera sammála um fiskeldi til að vera sammála um að umgjörðin skipti máli. (Forseti hringir.) Það skiptir máli að bregðast við þessum ábendingum og í þeim tilfellum þar sem er óvissa eiga varúðarsjónarmið að ráða för.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin en þau eru tvær mínútur undir þessum lið.)