störf þingsins.
Frú forseti. Ég ætla að gera tilraun til að vera með ofurlitla sögustund eða upprifjun á sögu fjárlaga. Hæstv. fjármálaráðherra sagði hér í pontu í gær í andsvari við hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, með leyfi forseta:
Varðandi verkefnið vil ég í þessu samhengi bara minna á það, og biðja hv. þingmenn að skoða söguna, hversu sjaldan ríkissjóður Íslands er rekinn réttum megin við núllið, í sárafáum tilfellum frá lýðveldisstofnun.
Og áfram hélt hæstv. ráðherra:
Það er bókstaflega talið á fingrum annarrar handar hvenær Alþingi hefur treyst sér til þess, og ríkisstjórnir, að skila hallalausum fjárlögum.
Mig rak nú í rogastans og svo sem hef kannski ekki fylgst með alveg frá lýðveldisstofnun en ágætlega síðustu áratugina og staðreyndin er sú að frá 1991 til framlagningar fjárlagafrumvarps þessa næsta árs eru fjárlagafrumvörpin sem hafa verið lögð fram hallalaus 19 talsins. Það er ekki teljandi á fingrum annarrar handar. Raunar var það þannig að á tímabilinu frá 1997–2019 voru aðeins fimm fjárlög lögð fram með halla. Það hittir þannig á að þau voru flestöll í tíð vinstri stjórnar Jóhönnu og Steingríms. Þetta er auðvitað ekki stórt atriði en þetta er partur af stærri mynd sem mér þykir vera að teiknast upp, að ráðherrar segi í raun bara eitthvað. Þetta á við um þá alla. Ég er ekki sérstaklega að leggja til atlögu við hæstv. fjármálaráðherra Daða Má Kristófersson heldur finnst mér það hafa verið að ágerast með áberandi hætti síðustu misseri að ráðherrar segi bara eitthvað og treysti á að komast upp með það. Það er himinn og haf á milli þess að bara á tímabilinu frá 1991 til dagsins í dag hafi verið lögð fram 19 hallalaus fjárlög og þess sem haldið var fram hér í pontu í gær, að þau væru teljandi á fingrum annarrar handar frá lýðveldisstofnun.
Virðulegur forseti. Ég vil bara halda þessu til haga og ætli ég verði ekki með svona endurteknar innkomur hér undir störfum þingsins (Forseti hringir.) það sem eftir lifir vetrar þar sem ég reyni að leiðrétta hæstv. ráðherra þegar þeim verður fótaskortur á tungunni.