158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Í dag, 15. september, er alþjóðlegur dagur lýðræðis. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað árið 2007 að helga þennan dag lýðræðinu. Dagsetningin vísar til þess að 15. september 1997 samþykkti Alþjóðaþingmannasambandið almenna yfirlýsingu um lýðræði. Tilgangurinn er einfaldur en mikilvægur: Að minna okkur á gildi lýðræðis og að það þurfi stöðugt að hlúa að því og efla. Sjaldan hefur verið jafn rík ástæða til þess og nú. Við lifum á tímum hraðra breytinga, óvissu og átaka. Víða eiga lýðræði og mannréttindi undir högg að sækja. Sumir halda að lýðræði snúist bara um kosningar. Staðreyndin er sú að það snýst líka um hvernig samfélag við viljum vera og þess vegna er barátta gegn rasisma, fordómum og hatursorðræðu líka lýðræðismál. Það sama á við um réttindi og öryggi hinsegin fólks. Lýðræði verður ekki sterkt nema það sé pláss fyrir okkur öll.

Virðulegur forseti. Alþingi hefur áður fjallað um að minnast dagsins sérstaklega. Fyrrverandi þingmaður, Þuríður Backman, lagði fram þingsályktunartillögu þess efnis á 141. löggjafarþingi. Síðar endurflutti fyrrverandi þingmaður, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, hana í tvígang, í síðara skiptið ásamt fyrrverandi þingmönnum, Brynhildi Pétursdóttur, Birgittu Jónsdóttur og Össuri Skarphéðinssyni. Kannski er kominn tími til að taka upp þennan þráð aftur. Með sæti hér á Alþingi fylgja ekki bara völd og áhrif. Orð okkar hafa vægi og þeim fylgir ábyrgð; ábyrgð á því hvernig við tölum, mætum ágreiningi og hvort við byggjum upp traust eða brjótum það niður. Það er líka hluti af því að standa vörð um lýðræðið sem er ekki sjálfgefið.