158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Fyrir meira en 1700 árum glímdi Rómaveldi við sama vandamál og þjóðir glíma við enn í dag, verðbólgu. Keisararnir höfðu rýrt verðmæti gjaldmiðilsins til að fjármagna vaxandi útgjöld ríkisins, aukin framlög til hersins og sístækkandi embættismannakerfi. Ríkið minnkaði silfurinnihald myntarinnar og sló fleiri myntir. Eins og við var að búast fóru hlutir að hækka í verði. Díókletíanus keisari brást við af hörku árið 301 og setti tilskipun um hámarksverð; hann bannaði verðhækkanir gegn hörðum viðurlögum. Og Höskuldarviðvörun: Þetta gekk ekki. Ég veit að ég er kannski fullmikið að líta í baksýnisspegilinn, frú forseti, og þetta er ekki gert til að koma höggi á fyrri ríkisstjórn Rómaveldis heldur til að benda á þá einföldu staðreynd að verðbólga stafar af því að ríkið setur of mikið af peningum í umferð og það er lítið unnið með því að krukka í verðinu. Rótin er skortur á aga og of mikill halli á ríkissjóði. Við lögum verðbólguna með því að laga hallann. Þess vegna er ég einkar glaður yfir því að við skulum ná að leggja fram hallalaus fjárlög heilu ári fyrr en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Við lofuðum og vorum kosin til þess að ná niður vöxtum og verðbólgu. Okkar stærsta og mikilvægasta framlag til þess er einmitt að skila hallalausum fjárlögum. Þetta er okkar mikilvægasta framlag til heimilanna, til atvinnulífsins og sveitarfélaganna. Allir þessir aðilar munu njóta góðs af stöðugu verðlagi og lægri vöxtum. Ég hef lengi talað fyrir því að upptaka annars gjaldmiðils sé leið til að ná þeim markmiðum varanlega. Ég er enn á þeirri skoðun. En óháð því er fyrsta skrefið alltaf það sama, að ná traustum tökum á fjármálum hins opinbera. — Forseti. Ég hef lokið máli mínu.