158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Það er kominn nýr frasi í handbók ríkisstjórnarinnar ofan á aðhald á tekjuhlið og að stoppa í glufur. Sá nýjasti er skynsemi í tekjuöflun. En hvernig birtist þessi skynsemi í tekjuöflun, frú forseti, af hálfu ríkisstjórnarinnar núna þegar til að mynda ferðaþjónustan á í vök að verjast og horfir fram á erfiðari tíma en hafa verið? Jú, núna akkúrat þegar gefur á bátinn þá leggst hún á ferðaþjónustuna af fullum þunga og einkum og sér í lagi á landsbyggðinni. Ég get rökstutt þetta með vísun í tæplega 16% hækkun á kílómetragjaldinu. Ekki eykur það ferðavilja ferðamanna lengra út á land til þeirra staða sem lengst eru frá miðsvæðinu sem er í kringum millilandaflugið þar sem líklega langflestir koma inn og ég hygg að Icelandair eigi þar um 60%, jafnvel ríflega það, af fólksflutningum til landsins. Þar er ég að vísa til svæða eins og Vestfjarða eða Norðurlands, Norðurlands eystra og Austurlands. Hvar er enn þá þyngra ráðist á svæðið? Þar eru baðlónin undir sem fá á sig færslu í virðisaukakerfinu úr 11% í 24%, sem þýðir í sumum tilfellum hugsanlega tekjutap á hverju ári upp á milli 40 og 60 milljónir. Ég er að vísa til staða eins og Vakar. Ég er að vísa til staða eins og sjóbaðanna á Húsavík, Skógarbaðanna við Akureyri, jarðbaðanna í Mývatnssveit og Fjörubaðanna á Hauganesi. Þetta eru staðirnir sem núna eiga að greiða fyrir hið meinta hallaleysi í fjárlagafrumvarpinu. Það eru fundnir nokkrir staðir úti á landi þar sem hefur tekist að byggja upp eitthvað sem er arðbært en er þó rekið hluta úr ári með tapi. Þeir skulu greiða meira. Það mun kosta störf og það mun líklega kalla á lokanir, frú forseti, á viðkomandi stöðum hluta úr ári.