störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég hef fengið nóg. Með leyfi yðar: „Grocery store, bakery, lunch, menu, street food, take away, open, closed.“ Þessi helst til kunnuglegu orð eru rétt svo toppurinn á ísjakanum þegar kemur að ótæpilegum ágangi enskunnar í öllu okkar daglega umhverfi, enska alls staðar á öllum skiltum um allt land, sums staðar á kostnað íslenskunnar sem hvergi sést. Þetta hefur stórversnað þannig á allra síðustu árum að enskan virðist sums staðar hafa unnið fullnaðarsigur. Við erum, vona ég, sammála um að svona eigi þetta ekki að vera en við höfum ekki náð að koma í veg fyrir þetta. Það hefur komið á daginn að það hefur ekki dugað að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að nota íslensku, þau nota ensku samt. Það hefur ekki dugað að hafa meginreglu í lögum um að auglýsingar skuli vera á íslensku. Úr því að þær mega líka samkvæmt lögum vera bara á ensku ef þær eiga að höfða til erlendra neytenda þá skáka allt of margir í því skjóli og hafa bara allt á ensku. Nei, þessi ráð hafa ekki dugað. Það er tímabært núna að við horfumst í augu við veruleikann.
Það er í grunninn tvennt í stöðunni. Annaðhvort höldum við áfram að vona að þetta mögulega skáni af einhverjum ástæðum, með öðrum orðum, leyfum þessu einfaldlega að viðgangast þar til, ja, að nánast ekkert bendir til þess lengur í almenna rýminu að við séum í landi þar sem hið opinbera tungumál er íslenska. Þetta er einn kostur. Hinn er sá að við grípum til okkar ráða og beitum þeim tækjum sem við höfum hér á Alþingi Íslendinga, þ.e. íslenskum lögum og það er mín tillaga. Ég hef nú lagt fram frumvarp sem er mjög einfalt að efni. Þar er lagt til að auglýsingar á Íslandi skuli vera á íslensku, punktur. Önnur tungumál mega vera með enda stundum ástæða til þess. En íslenskan verður að vera og íslenskan verður að vera meira áberandi. Þetta gildir vel að merkja líka um skilti. Matvöruverslun var það, virðulegur forseti, ekki „grocery store“. Við þá sem heyra þetta og hugsa að þetta sé kannski svolítið vel í lagt, (Forseti hringir.)vil ég spyrja á móti: Hversu langt á þetta að ganga áður en við bregðumst við? (Forseti hringir.) Tíminn er núna. Þetta er spurning um sjálfsvirðingu okkar sem þjóðar.