158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[14:45]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða yfirferð í ræðu sinni. Það er auðvitað þannig með þessi fyrstu tvö þingmál hvers þings, fjárlögin og bandorminn, að þau ræðast eðlilega í nokkru samhengi. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, svona í ljósi fyrri starfa og djúprar þekkingar á menntamálum landsmanna á flestum stigum þeirra, svo ég tali nú varlega, hvernig hann sér fyrir sér þessa heildarmynd teiknast upp núna með tilliti til útgjaldahluta fjárlaganna, sem við erum búin að ræða að forminu til hér við 1. umræðu. Eins og ég segi þá eru þessi tvö mál svo nátengd að þau verða að skoðast heildstætt. Með hvaða hætti sér hv. þingmaður fyrir sér þessa mynd teiknast upp? Ég hef haft á tilfinningunni lengi, svona í ljósi þess og með vísan í PISA-kannanir að árangurinn hefur því miður ekki verið bærilegur í neinu samhengi um allnokkra hríð en kostnaðurinn við kerfið gríðarlega hár í alþjóðlegu samhengi, og hef verið þeirrar skoðunar, og vísa svo sem í menn sem þekkja það betur en ég, heilbrigðiskerfið okkar, að sum kerfi séu þannig að það sé alveg sama, það sé hægt að ausa endalaust peningum inn í þau án þess að árangur náist. Hvernig sýnist hv. þingmanni þessi heildarmynd teiknast upp með tilliti til menntakerfisins? Erum við að eyða nægilega mikilli orku í að gera kröfu um að fá meira fyrir peninginn okkar sem tryggir börnunum okkar og unglingum og ungu fólki betri menntun? Eða erum við á einhverri sjálfstýringu sem kann ekki góðri lukku að stýra og fer væntanlega á endanum verst með nemendur landsins?