breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég vil bara fagna þessu andsvari hv. þm. Bergþórs Ólasonar því ég tel að það sé allt of lítið rætt um þessi mál hér á þinginu enda menntamál risastórt efnahagsmál. Það er talið að helmingur alls hagvaxtar í heiminum sé skapaður af menntun og Alþjóðabankinn segir að 9% árstekjuaukning komi við hvert gott ár í menntun þannig að þetta skiptir miklu máli. Lánakjörin okkar eru líka þannig að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur mið af því hvernig við stöndum í menntamálum, þannig að lánakjör okkar erlendis skipta máli þarna. Því miður held ég og hef á tilfinningunni, þrátt fyrir ákveðna jákvæða tilburði hæstv. menntamálaráðherra, að við séum enn á ákveðinni sjálfstýringu. Líka það að það þurfi alltaf að kosta meira til að ná árangri — ég slæ hendinni á móti því. Sjálfur hef ég verið í þessu kerfi og rekið stórar stofnanir sem hafa kostað mörg hundruð milljónir og árangur og kostnaður í kerfinu fer ekki endilega saman, alls ekki. Það er ýmislegt í stefnunni, í sýninni og í aðferðunum sem skiptir miklu meira máli. Ég veit það bara að skólar sem hafa skilað einna bestum árangri hvað alla þætti skólastarfs varðar, það breytir ekki máli hvort það er fjárhagur, líðan, námsárangur, starfsmannavelta eða annað, eru jafnframt ódýrustu skólar landsins þrátt fyrir að nemendahópurinn þar sé ekkert minna blandaður en annars staðar. Það eru nemendur þar af öllu tagi, þetta eru ekki einhverjir elítuskólar sem ég er að tala um hér heldur bara hefðbundnir skólar. Þannig að dæmin eru til sem sanna það sem hv. þingmaður var nú kannski aðeins að ýja að eða ræða um, að fjáraustur hjálpar ekki alltaf til. Það er ekki þannig. (Forseti hringir.) Við þurfum að hafa réttar undirstöður, rétta stefnu, rétta sýn og réttar aðferðir til að ná árangri. Það á við í öllu og ekki síst í skólakerfinu.