158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[14:49]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég á eftir að hlusta aftur á ræðu hv. þingmanns frá því í störfum þingsins fyrr í dag sem mér þótti prýðisgóð við fyrstu áheyrn og batnar örugglega við aðra. Þar var einmitt þetta atriði dregið fram varðandi kostnað annars vegar og árangur hins vegar. Hefur hv. þingmaður kenningar í þeim efnum? Er þetta mismunandi nálgun þeirra sem stýra skólanum, er það svigrúmið sem námskrá og kerfið býður upp á eða er þetta bara í rauninni stjórnendur og kennarar sem ná upp einhverri stemningu, svo við hugum að þessum tiltekna skóla sem hv. þingmaður nefndi í störfunum áðan? Hvað telur hv. þingmaður ráða því að það náist svona góður árangur í skóla sem er svona hagkvæmur í rekstri eins og þingmaðurinn lýsti?