breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir annað prýðisandsvar. Hann spyr ákveðinnar grundvallarspurningar sem ég man ekki eftir að hafa heyrt hér í þinginu og er þvílíkt ánægður með. Auðvitað eru ákveðnir ytri þættir sem skipta líka máli. Stærð skóla skiptir máli og fjöldi nemenda þannig að það sé hagkvæmt að reka skólann, að þú sért með ákveðinn fjölda kennara og það sé hægt að gera ýmsa hluti. Ef þú ert með nógu stóran skóla getur þú verið með alls konar valgreinar sem geta ýtt undir námsárangur. En að megninu til er þetta sú menning sem skapast í skólanum. Menn beri ábyrgð á sínu skólastarfi, menn reki þetta með sem bestum hætti, það séu allir, fólkið sem vinnur á göngunum, matráður, húsvörður, kennarar, stjórnendur, skólaliðar og stuðningsfulltrúar, að róa í sömu átt, þeir séu stoltir af sinni stofnun, séu með mikið sjálfstraust og séu hugrakkir. Það hljómar skringilega en það er svona sem ástríða myndast inni í kerfinu. (Forseti hringir.) Það er svona sem það næst árangur á öllum sviðum skólastarfsins.