breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegur forseti. Ég verð að byrja á að þakka þingmanninum fyrir fína ræðu. Hann veltir upp alls konar hlutum í ræðu sinni sem mig langar að reyna að bregðast við. Hann nefnir að ríkisstjórnin hafi mögulega vitað stöðuna á efnahagsmálum og ríkisfjármálunum áður en hún tók við. Ég veit það svo sem ekki alveg en ég held ekki. Nú sit ég í fjárlaganefnd og eitt af því sem við vorum að fást við síðasta haust var að við vorum t.d. með læknasamninga sem voru ófjármagnaðir og það náttúrlega vissi enginn. Opnað var meðferðarheimili með pomp og prakt í Mosfellsbæ og það stóðst engar vottanir og engin próf og að sjálfsögðu var ekki hægt að opna. Það voru alls konar svona hlutir sem menn voru að reka sig á. Svo var það líka þannig að við gerðum upp ÍL-sjóð þar sem við vorum að borga fyrir rándýr kosningaloforð Framsóknarflokksins, sem voru reyndar studd af öðrum flokkum líka. Það voru alls konar mál sem komu upp og stóri lærdómurinn er auðvitað sá að þessi gríðarlega mikli halli sem er uppsafnaður eftir jarðhræringarnar og eftir heimsfaraldurinn sýnir að það er ekki skynsamlegt að taka lán fyrir svona gríðarlega miklum ríkisútgjöldum. Það er nokkuð sem við þurfum að læra saman af.
Mig langar samt að bregðast við varðandi kílómetragjaldið. Hv. þingmaður nefnir að það komi verr niður á landsbyggðinni. Mig langar að benda honum á greiningu sem við létum gera í efnahags- og viðskiptanefnd í fyrra þegar við vorum að ræða kílómetragjaldið. Þar kom í ljós að þetta kemur betur út fyrir íbúa á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu af því að íbúar á landsbyggðinni keyra að meðaltali minna þar sem vegalengdir eru styttri. Það er auðvitað lengra að fara þegar þeir sækja sér heilbrigðisþjónustu, eins og hv. þingmaður nefnir réttilega, en það er bara svo sjaldan. Þegar horft er yfir árs tímabil keyra íbúar á landsbyggðinni þannig minna. Þetta kom mér dálítið á óvart en íbúar höfuðborgarinnar keyra meira, sérstaklega þeir sem eru í Kraganum, þeir keyra allra mest.