breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir andsvarið. Fyrst varðandi ÍL-sjóð, ég held það hafi verið skynsamlegt að klára það mál. Það var augljóst að það mál hefði getað orðið enn verra fyrir ríkissjóð, þannig að ég kvarta ekki undan því að gengið hafi verið frá því. Það sem ég er aðallega að vísa til er það sem ég tel að ríkisstjórnin hefði getað gert með öðrum hætti. Það var gríðarlegur velvilji til ríkisstjórnarinnar í upphafi kjörtímabilsins og ég held að það hefði eiginlega verið nákvæmlega sama hvað ríkisstjórnin hefði boðið almenningi upp á, hún hefði getað glansað í gegnum það. Þess vegna vil ég meina að fyrstu tvö árin hafi verið dálítið glötuð tækifæri hvað það varðar að vera með betri væntingastjórnun og horfa til stöðunnar eins og hún var. Ég upplifi þessi tvö ár sem eru liðin eins og það hafi ekki verið upptaktur að núverandi stöðu heldur séum við í rauninni að henda núverandi stöðu inn í umræðuna. Ég verð að segja að mér finnst stjórnarliðar hreinlega ekki hafa trú á að við munum ná hér hallalausri niðurstöðu og það er auðvitað miður.
Mér þykir gaman að heyra að svona heilt yfir keyri íbúar meira á höfuðborgarsvæðinu. Það eru fréttir fyrir mig en ég beygi mig undir það ef það er niðurstaðan. Ég hefði hins vegar gert ráð fyrir því fyrir fram að það færi eftir því hvernig við skilgreinum „úti á landi“. Ef við skilgreinum stórhöfuðborgarsvæðið þá held ég að þetta gæti einmitt passað og ef við erum með Hvítár-Hvítársvæðið þá væru menn að keyra töluvert meira. En ég hefði haldið að t.d. þar sem eru stórir íbúðarkjarnar og mikið dreifbýli í kring sé töluvert mikil keyrsla til þéttbýlisstaða.