breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil nú þakka honum fyrir andsvarið. Það er rétt sem hann nefnir. Íbúar á Selfossi, Akranesi og Reykjanesbæ koma verst út úr þessum samanburði. En það voru íbúar á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra sem komu best út. Mér fannst þetta áhugavert því það var alltaf talað um að þetta væri landsbyggðarskattur og þetta setti þetta alla vega í nýtt ljós hvað mig varðar.
Mig langar aðeins að ræða við hv. þingmann. Ég veit að hann er ábyrgðarfullur og þráir jafn mikið og við að ná tökum á ríkisfjármálunum. Mig langar að spyrja hann út í þessa leið sem ríkisstjórnin er að fara, þessa blönduðu leið af hagræðingu upp á 44 milljarða og svo nýjum tekjuráðstöfunum upp á 27,3 milljarða. Hann talaði um að verið væri að leita í vasa þeirra sem væru óvinsælastir. Ég held að ég geti sagt að það sé ekki svo, það er auðvitað bara verið að horfa á arðsemi þessara fyrirtækja og það er verið að horfa í það hverjir geti lagt meira af mörkum til samfélagsins. Við eigum þetta samfélag saman og það er kannski eðlilegt fyrir okkur jafnaðarmenn að leita til þeirra sem hafa getu til að bera þyngri byrðar. Mig langar að fá hans viðhorf — það eru 44 milljarðar í hagræðingu og svo 27,3 í nýjar tekjuráðstafanir. Svo erum við líka með nýja atvinnustefnu þar sem við erum auðvitað að reyna að ýta undir verðmætasköpun. Ég held að það sé líka lykilhlutverk í því að ná hér tökum á ríkisfjármálunum að gefa svona „boost“ inn í atvinnulífið — hvort hann sé ekki sammála þessu, að það verði að fara þessa blönduðu leið, með hagræðingu, nýjum tekjuráðstöfunum og svo ýta undir verðmætasköpun eins og birtist í nýrri atvinnustefnu.