breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir gott andsvar. Hún er auðvitað að leggja fyrir mig gildru. Ég mun að sjálfsögðu aldrei samþykkja að það sé góð leið að hækka skatta og vil hreinlega segja að, hvort heldur um er að ræða bankaskattana eða hækkun á virðisaukaskattsþrepi gagnvart baðlónum, ég held að hvorug þeirra ráðstafana sé góð ráðstöfun. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að það skipti miklu máli að við reynum að ýta undir verðmætasköpun eins mikið og við mögulega getum og það á auðvitað að vera leiðin.
Ég vil líka benda á að til að grynnka á skuldum er það auðvitað þannig að við eigum töluvert af eignum og ríkið er að vasast í ýmsu sem ríkið þarf ekkert endilega að vera að vasast í. Ég held að það sé hollt fyrir okkur á hverjum tíma að alltaf þegar við erum að taka upp ný útgjöld hjá ríkinu þá eigum við að byrja á því að hugsa: Er ekki hægt að spara fyrir þessu einhvers staðar annars staðar? Við eigum að reyna að horfa til þess að byrja alltaf á að spara inn á við.
Svo langar mig að nefna, af því að mér finnst það vera algengur misskilningur hjá stjórnarliðum, að það að fresta framkvæmdum eða seinka verkefnum er í raun ekki sparnaður. Þetta eru fjármunir sem við munum þurfa að reiða af hendi þannig að það er í sjálfu sér ekki sparnaður. Við erum í raun bara að seinka framkvæmdum og það er alls ekki það sama.