158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:21]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir prýðisgóð svör. Mig langar í seinna andsvari aðeins að ræða við hann varðandi skynsamlegt innlegg varaseðlabankastjóra peningastefnu Seðlabanka Íslands sem mætti á fund hjá Félagi atvinnurekenda fyrir nokkrum dögum. Þar sagði hann, með leyfi forseta:

„Sjálfvirk verðtrygging eins og notuð er í fjárlagafrumvarpinu varðandi krónutölugjöld og -skatta hins opinbera er langvarandi ósiður og mikilvægt verkefni að reyna að leggja slíkt af.“

Ég held áfram, með leyfi forseta:

„Ég heyri það til dæmis bara á mínum samtölum við rekstraraðila í smásöluverslun að þegar þeir heyra þetta verða þeirra samtöl við birgja til dæmis ansi erfið. Menn segja: Ríkið er að hækka um 5,2 — af hverju ættum við þá að hækka um 2,5? Þannig að ég er að þessu leyti alveg sammála, þetta er eitthvað sem mætti gjarnan endurskoða.“

Þetta segir varaseðlabankastjóri peningastefnu Seðlabanka Íslands. Mig langar að spyrja þingmanninn, vegna þess að hann kom aðeins inn á það í sinni ræðu hér áðan með þessa 5,2% krónutöluhækkun, að forsætisráðherra hafi gefið það til kynna að þetta gæti mögulega verið eitthvert útspil í kjaraviðræðum: Finnst þingmanninum það ekki furðulegt útspil að það sé verið að tengja þetta því sem fram kemur, bæði í fjárlögum og í þessum bandormi, um 5,2% krónutöluhækkun að lágmarki?