breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Við erum hérna að ræða frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga, bandorminn. Hér er verið að gera margvíslegar breytingar á sköttum og gjöldum og óhjákvæmilegt að setja þetta í heildarsamhengi við tilraun hæstv. ríkisstjórnar til þess að senda ákveðin skilaboð hér með nýjum fjárlögum, hallalausum fjárlögum sem voru margboðuð, þar sem öllum er löngu orðið ljóst að til þess að endurheimta trúverðugleika ríkisvaldsins á sviði efnahagsmála er löngu tímabært að breyta um nálgun í fjárlögum og fara, eins og kostur er, að skila ríkissjóði með afgangi eins og hér er stefnt að, um einhverja 5 milljarða í þessu fyrsta uppkasti. Það er auðvitað, þannig að það sé tekið fram hérna í upphafi, ekkert annað en grundvallarábyrgð ríkisstjórnarinnar á þessum tímapunkti þegar við erum í töluvert annarri stöðu en verið hefur á síðustu árum sem hafa einkennst af miklum sveiflum í efnahagslífinu og áföllum. Nú er slíku ekki til að heilsa strangt til tekið. Þótt ýmsar blikur séu sannarlega á lofti og ýmsar þær breytur sem eru hvað breytilegastar frá ári til árs fari auðvitað upp og niður erum við engu að síður í stöðu núna þar sem engin slík meiri háttar stóráföll blasa við svo að það réttlæti að unnt sé að halda áfram rekstri ríkissjóðs með halla eins og verið hefur. Það er kannski forsendan, pólitíska forsendan fyrir þessari vinnu ríkisstjórnarinnar núna, að það eigi að fara inn í þessa fjárlagavinnu með þetta markmið og við þessar forsendur og nota tækifærið til þess, eins og sagt er og sagt hefur verið, að endurheimta trúverðugleika ríkisvaldsins á þessu sviði. Ábyrgð ríkisvaldsins, sem er að sýsla hér með milljarða, þúsundir milljarða, er stór leikandi í efnahagslífinu. Ábyrgð ríkisvaldsins á verðbólgunni er töluverð og ef mönnum er alvara með að þoka þessu í rétta átt, þoka verðbólguþróuninni í rétta átt, sem hefur alls ekki farið í þá átt sem ríkisstjórnin boðaði hér fyrir kosningar eða í raun og veru lofaði með ýmsum tiltækum ráðum að ráðast að með sleggjum, ef mönnum er raunverulega alvara þá er auðvitað lag að gera það núna með þessum fjárlögum.
Það hefur hins vegar borið á margvíslegum athugasemdum úr mjög fjölbreyttum áttum, ekki aðeins úr seinni átt, ekki aðeins frá atvinnurekendum, ekki aðeins frá launþegahreyfingu, ekki aðeins frá alls konar hagsmunasamtökum í samfélaginu, ekki aðeins úr einni átt heldur úr mörgum áttum og jafnvel úr öllum áttum hefur borið á töluverðri óánægju með fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp, nálgunina, að þarna sé farið í augljóslega mjög tæpan afgang eins og bent hefur verið á. Þetta eru 5 milljarðar og má ekki miklu muna til þess að þetta falli og þetta markmið náist ekki. Það eru bara fáar breytur sem þurfa að hnikast til eftir ýmsum leiðum til þess að þetta í raun og veru gangi ekki upp lengur sem skyldi. Þetta finnur markaðurinn greinilega og menn hafa bent á að strax eftir að þetta kemur fram taka skuldabréfamarkaðir við sér með þeim hætti að það gefur til kynna að verðbólguvæntingar fari ekki skánandi eftir framlagningu frumvarpsins eins og menn hefðu auðvitað viljað, áhrif sem menn hefðu sannarlega viljað ná fram með framlagningu svona frumvarps. Hlutur af því er augljóslega það sem er undir hér í þessu frumvarpi, sem er hækkunin á gjaldskrám á línuna á flestum sviðum þar sem það er í raun og veru spurning, um 5,2%, í samræmi þá við vænta verðbólgu.
Þetta er auðvitað gömul saga og ný og ekki sanngjarnt að láta eins og þetta hafi aldrei verið gert áður. En það hefur þá verið við aðrar kringumstæður og ekki þær kringumstæður að allir horfi nú til ríkisvaldsins um það hvernig það ætli að axla sína ábyrgð á efnahagsmálum. Við erum með sérstakar kringumstæður núna þar sem sérstaklega hefur verið horft á þennan þátt, þar sem Seðlabankinn hefur sérstaklega varað við einmitt þessum þætti og óskað eftir því eða lagt fram sín sjónarmið, sín málefnalegu sjónarmið sem eru nú ekki gripin úr lausu lofti heldur eru afrakstur athugana sérfræðinga þar, um að gjaldskrárhækkanir séu drífandi þáttur í verðbólgunni eins og hún hefur verið. Auðvitað eru ýmsir ytri þættir og við höfum síst stjórn á þeim en við horfum auðvitað á þá sem við höfum stjórn á og ef við hegðum okkur ekki eftir réttri forskrift á því sviði er trúverðugleiki ríkisvaldsins ekki nægur. Þórarinn G. Pétursson, sem er varaseðlabankastjóri peningastefnu, talar t.d. um þennan þátt á vettvangi hagsmunasamtaka atvinnurekenda, þ.e. hjá Félagi atvinnurekenda, að þessi sjálfvirka vísitölutenging sé, eins og hann orðar það, langvarandi ósiður í íslenskum ríkisfjármálum. Þetta þurfi ekki að vera svona en ríkisvaldið og ríkisstjórnin haldi áfram uppteknum hætti núna. Þannig að það er ekki aðeins þetta heldur í raun og veru aðrar forsendur í víðari skilningi þessara fjárlaga, eins og maður hefur núna verið að glöggva sig á eftir að maður sá frétt þess efnis í morgun frá verðbréfafyrirtækinu ACRO, að þeir telji, ekki aðeins alveg óháð þessum gjaldskrárhækkunum sem menn hafa auðvitað gert alvarlega athugasemd við, að forsendur frumvarpsins séu nokkuð bjartsýnar, þ.e. að þessi afkomubati um 72 milljarða kr., eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, velti þá á því að það verði verulegur tekjuvöxtur vegna aukinna efnahagsumsvifa eða þá einhvern veginn að hagkerfið sé að koma til baka eftir skell en að þessu sé ekki til að dreifa nú.
Forsendur alls frumvarpsins eru vægast sagt mjög bjartsýnar, eins og menn benda á í þessari umræðu, og þá er auðvitað enn frekar spurning hvert ríkisvaldið stefnir með þessu. Í sambandi við gjaldskrárhækkanirnar er vert að nefna það að menn fara fram með 5,2% hækkun í þessu frumvarpi til fjárlaga, vitandi hvaða viðbrögð það mun augljóslega fá vegna þess að menn úti í samfélaginu, eins og margoft hefur komið fram, eru að horfa til þess hvernig ríkið fer fram, hvernig ríkisvaldið fer fram gagnvart sínum gjaldskrárhækkunum, og hugsa: Ja, þá getur maður auðvitað gengið jafn langt. Það er auðvitað táknræn þýðing þessarar ákvörðunar. Þetta er ekki endilega spurning um þessa 3 eða 4 milljarða sem skeikar þarna á milli þess að fara í þessa gjaldskrárhækkun upp á 5,2% eður ei. Þetta er líka spurning um táknræna þýðingu þessara skilaboða og hvernig aðrir aðilar markaðarins lesa í þau og ákveða að haga sínum málum í samræmi við það.
Síðan er í ofanálag farið fram með þeim hætti að fljótlega eftir að þetta kemur fram er strax farið að gefa í skyn að það sé alls ekki gefið að þetta verði endilega endanleg niðurstaða. Í samræðum við aðila vinnumarkaðarins hefur hæstv. forsætisráðherra gefið svolítið oft til kynna að hún hafi ekki áhuga á að ríkisvaldið hafi sambærilega eða nákvæmlega sömu aðkomu og verið hefur að kjarasamningum en er samt farin að gefa það í skyn, strax eftir framlagningu fjárlaga, að það sé nú alveg eins líklegt að þetta verði tekið til endurskoðunar. En þá er samt skaðinn skeður. Þá er samt skaðinn skeður sem menn hafa varað við gagnvart verðbólguvæntingum, gagnvart trúverðugleika ríkisvaldsins til að raunverulega ná stjórn á verðbólgunni og ríkisútgjöldunum og auðvitað sínum þætti í verðhækkunum með gjaldskrárhækkunum, þá er samt trúverðugleikinn farinn. Þetta er ekki góð aðferðafræði, virðulegur forseti, að mínu mati og það eru svona breiðu strokurnar.
Svo er hægt að nefna ýmislegt í þessu og m.a. hefur ekki farið mikið fyrir því í umræðunni — jú, auðvitað hefur verið bent á til að mynda tekjuskattinn, að með því að hækka ekki þrepin sé á vissan hátt verið að hækka þann skatt miðað við að verðbólgan sé eins og hún er en að tekjuskattsþrepin þróist ekki í samræmi við það. Annað sem var til umræðu hérna síðast er samsköttunin, afnám samsköttunar sem kemur til áhrifa núna á næsta ári, 2027, um einhverja 3 milljarða. Þar á að skattleggja hjón sem hafa ójafnar tekjur með töluvert öðrum hætti en verið hefur í stað þess að leyfa mönnum að nýta persónuafsláttinn eftir því hvor aðilinn inni á heimilinu er með hærri tekjur og færa persónuafslátt þar á milli. Nú er stefnt að því, og það er auðvitað búið að taka gildi núna, að árið 2027 verði farið í vasa þessara fjölskyldna. Ég hef bent á að þetta er oft t.d. fólk sem er á barneignaraldri með ójafnar tekjur af ýmsum ástæðum, vegna þess að menn eru að falla á milli skips og bryggju í fæðingarorlofstöku. Þarna er verið að skattleggja t.d. þannig fjölskyldu um jafnvel 300.000–400.000 aukalega á einu ári. Það að standa með fjölskyldum myndi ég nú ekki segja að felist í raun og veru í því að ganga svona langt í þessari breytingu.
Þetta minnir okkur m.a. á hversu varanlegar svona breytingar eru og hvernig þær festast í sessi. Þegar svona gjöld hækka eru þau til umræðu um skamma hríð en svo áður en við vitum af eru þau orðin hluti af síaukinni skatttekju stjórnvalda á flestum sviðum á meðan stjórnvöld sýna ekki að þau geti náð stjórn á sinni eigin buddu. Þar er auðvitað af ýmsu að taka og gífurleg útgjöld sem við erum að glíma við og eins og menn hafa bent á hvað varðar aðhaldið sem er undir hér þá er góður hluti þess augljóslega bara frestun á aðgerðum og öðru eins en það er ekki verið að fara í saumana eða ofan í kjölinn á hinum stóru póstum ríkisvaldsins, opinbera kerfinu í víðari skilningi, stjórnsýslunni sem hefur vaxið hraðar en almenni markaðurinn að undanförnu. Það er áhyggjuefni sem er ekki verið að taka á en ekki hikað við að fara í skattahækkanir og gjaldskrárhækkanir.
Að því sögðu býst ég nú við að það verði lífleg umræða um þetta og áfram hér í vetur um ýmsa þætti þessa. Ég segi að lokum að niðurstaðan er auðvitað ákveðin vonbrigði, að menn skuli ekki hafa gætt betur að þessum þætti, sérstaklega með gjaldskrárhækkanirnar sem eru þáttur sem vitað var að horft væri sérstaklega til en ákveðið var að fara í þessa átt. Ég get ekki alveg gert upp við mig hvers vegna það var gert í stað þess að ganga á undan með góðu fordæmi og vera með raunverulegt framlag inn í þessa umræðu um sjálfbærar framtíðarhorfur þegar kemur að aðkomu ríkisvaldsins að verðbólgunni.