158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[16:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Við sitjum uppi með sérkennilega ríkisstjórn. Það er freistandi að fá lánað frá Tolstoy og segja að allar farsælar ríkisstjórnir séu svipaðar en vanhæfar ríkisstjórnir séu mislukkaðar hver á sinn hátt og þessi er mislukkuð á sinn hátt. Þó er eitt og annað sameiginlegt þegar hlutirnir mistakast hjá stjórnvöldum og það er eitt og annað sameiginlegt þegar hlutirnir fara vel. Það er með öðrum orðum hægt að læra af reynslunni. Það er hægt að átta sig á því hvað virkar og hvað virkar ekki. En núverandi ríkisstjórn er fullkomlega ófær um að læra af reynslunni og það fjárlagafrumvarp og fylgifiskur þess, sem við ræðum hér, sem stjórnin lagði fram nú á nýju þingi, er staðfesting þess að stjórnin getur ekki lært af reynslunni því við erum búin að fara í gegnum þetta áður.

Þegar ríkisstjórnin lagði fram fjárlagafrumvarp síðast voru á því ýmsir hinir sömu gallar sem einkenna fjárlagafrumvarpið nú. Á það var bent ítrekað af stjórnarandstöðunni í 1. umræðu, í 2. umræðu og í lokaumræðunni. Þá var reynt að draga það fram hvaða mistök væri verið að gera og það var þrætt fyrir það af hálfu meiri hlutans, ekki hvað síst hæstv. fjármálaráðherra sem kynnti til sögunnar sínar eigin kenningar um hvernig hagkerfið virki og sakaði raunar gagnrýnendur sína um að hafa engan skilning á því hvað sneri upp né niður. En svo kom á daginn að hinn almenni sannleikur, þar sem stjórnarandstaðan hafði bent á gagnrýni hennar, reyndist réttur og sannaði gildi sitt. Þar má til að mynda nefna skatta- og gjaldhækkanir síðasta fjárlagafrumvarps sem varð síðan að þeim fjárlögum sem við störfum eftir núna.

Það má eiginlega segja að við höfum þrábeðið stjórnina um að leiða ekki verðbólgu og vaxtahækkanir á árinu sem nú er að líða með þeim áformum sem kynnt voru í fjárlagafrumvarpinu. Þau létu sér ekki segjast og gáfu tóninn, gáfu út tilkynningu um það að allt mögulegt sem ríkið legði gjald á skyldi hækka við síðustu áramót og strax á fyrsta degi nýja ársins, a.m.k. fyrsta virka degi, fóru að streyma inn fréttir frá fyrirtækjum sem voru að tilkynna um nauðsynlegar gjaldahækkanir og verðhækkanir vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar og svo hafði hitt auðvitað áhrif líka, allar þessar skattahækkanir, en lærdómurinn var enginn. Það var enginn lærdómur dreginn af þessu, eiginlega bara bætt í eins og við sjáum í því frumvarpi sem við ræðum núna, þar sem ríkisstjórnin gefur tóninn með því að hækka gjöldin um 5,2%, sendir út í samfélagið þau skilaboð að nú verði lágmarksverðbólga á nýja árinu 5,2% og maður er þegar farinn að sjá umfjöllun um að fyrirtæki séu að búa sig undir það að þurfa að hækka verð sín. Í ósvífni sinni segir ríkisstjórnin bara það sama og síðast nokkurn veginn svona: Ekki gera eins og við gerum heldur eins og við segjum, þ.e. þótt við séum að hækka á ykkur gjöld þá skuluð þið ekki dirfast að hækka gjöld á aðra. Það er náttúrlega til marks um að það skorti skilning hjá þessari ríkisstjórn á því hvernig fyrirtækjarekstur gengur fyrir sig, þetta viðhorf að fyrirtækin séu að skemmta sér við það að skattpína almenning með óhóflegum verðum, fyrirtæki sem eru í samkeppni og ekki í sömu stöðu og ríkið að geta bara lagt línurnar með hvað menn skuli borga. En fyrir vikið horfum við upp á endurtekin mistök. Svo eru það allar skattahækkanirnar sem eru eiginlega eins og þær hafa verið hannaðar til að auka á verðbólgu í landinu. Það er eins og einhver hafi reynt að finna leiðina til þess að fara þvert á þau markmið sem þessi ríkisstjórn lét kjósa sig út á.

Hækkun bankaskattsins sem fjármálaráðherrann viðurkennir að muni enda hjá viðskiptavinunum — það er sem sagt skattur sem hækkar vexti beint frá ríkisstjórn sem lét kjósa sig til að berja niður vexti og verðbólgu. Hækkar skatt sem er til þess fallinn að hækka vextina beint til viðbótar við öll útgjöldin sem hún hefur staðið fyrir og hafa hækkað vexti og verðbólgu með þeim hætti. Svo eru það áform um að draga verulega úr endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstað sem er bara leið til að hækka húsnæðisverð í framhaldinu þrátt fyrir allt talið um áhyggjur af fasteignamarkaðnum og stjórnvöld þurfa að reyna að koma þar inn í.

Þessi stjórnvöld eru reyndar fjandsamleg séreignarstefnunni og virðast hafa það að markmiði, alla vega miðað við hvernig stjórnin gengur fram, að færa sem flesta í leiguhúsnæði þótt langflesta langi að eignast eigið húsnæði og byggja upp eign í því. En þarna er enn verið að hækka verð á húsnæði. Svo er það kílómetragjaldið sem kynnt var hér sem ný og praktískari leið til að leggja gjöld á umferð sem ætti ekki að auka heildarálögur á bíleigendur. Um leið voru vörugjöldin á bílana hækkuð eins og við þekkjum. Niðurstaðan varð mjög veruleg aukning gjalda á bílaeigendur, sem hefur reyndar verið viðvarandi ár eftir ár. Það er endalaust hægt að taka meira af fólki fyrir það að þurfa að komast leiðar sinnar á Íslandi. En þarna er þetta nýja gjald, eins erfiðlega og hefur gengið að framkvæma það, hækkað um 16% á milli ára, 16% hækkun, gríðarleg hækkun á þessu gjaldi sem okkur var fyrir ekki svo löngu sagt að ætti að boða nýja og betri tíma og menn vissu þá hvar þeir stæðu og þyrftu ekki að óttast frekari hækkanir.

Ég ætla ekki að nota tíma minn í þessari ræðu til að rekja öll hin gjöldin og hækkanirnar sem hafa verið lögð á til að rökstyðja það að það þyrfti átak í innviðamálum og samgöngum sérstaklega. Þetta eru orðin fjölmörg dæmi. Veiðigjaldið var nú frægt hvað þetta varðaði en svo var fundið upp þetta félag þarna sem á að taka peninga aukalega af fólki fyrir það að keyra vegina og ótal leiðir hafa verið kynntar sem lausnin á því hvernig við gætum nú loksins sett peninga í vegina. En þeir fara ekkert í vegina. Það er ekki gert ráð fyrir því í þessu fjárlagafrumvarpi að það verði neitt stórkostlegt átak í samgöngumálum þrátt fyrir hækkanir hér, hækkanir þar, hækkanir alls staðar. Umhverfisgjöldin hækka alltaf og kannski finnst stjórnvöldum þægilegt að hækka slík gjöld af því að þau líta á það sem einhvers konar dyggð, þetta eru svona refsigjöld til þess að senda merki til almennings um að hann eigi að haga sér betur og þeim mun meira sem þau eru hækkuð, þeim mun meiri er þá einbeiting ríkisstjórnarinnar í því að við viljum vernda umhverfið.

Hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir rakti hérna nokkur dæmi um mörg hundruð prósenta hækkanir á slíkum gjöldum og hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir fjallaði um mál sem ég hafði reyndar ekki áttað mig á og verð að skoða betur, að með þessu frumvarpi sé verið að festa í sessi ETS-refsigjöldin, refsigjöld Evrópusambandsins sem hafa reynst svo skaðleg fyrir framþróun, uppbyggingu og verðmætasköpun í Evrópu og svo núna hér á Íslandi því að íslensk stjórnvöld álpuðust til að taka þátt í þessu og þykjast vera að reyna að semja um einhverjar sérlausnir. Nú virðist eiga að festa þetta almennilega í sessi með því frumvarpi sem við ræðum hér.

Þetta er allt á sömu bókina lært. Það er ekkert samhengi á milli þess sem sagt er og þess sem gert er og við sitjum uppi með ríkisstjórn sem var kosin út á það, að eigin mati, held ég, og kannski margra annarra, að hún væri best til þess fallin að ná tökum á vandanum við vexti og verðbólgu á Íslandi og ná tökum á efnahagsstjórninni. En allt er þetta að þróast til verri vegar og þess hafa komið merki ítrekað og við höfum spurt hér, hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar, hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra, aftur og aftur: Sérðu þetta ekki núna? Sérðu ekki núna tilefnið til að bregðast við? En viðbrögðin eru engin, nema meira af því sama og skapaði vandamálið. Það er það sem einkennir þetta frumvarp sem er svo kynnt á svona alls kostulegan hátt með því að forystumenn ríkisstjórnarinnar komi saman brosandi og teikni stórt núll á töflu.

Hvernig ætli þessi mynd muni eldast? Nú þegar eru menn farnir að reikna líklega raunverulega niðurstöðu fjárlagafrumvarpsins þrátt fyrir allar þessar hækkanir sem ég hef verið að rekja hér og aðrir hv. þingmenn og margar fleiri. Nú gera greinendur ráð fyrir að hallinn geti hæglega verið 43 milljarðar þótt hlutirnir gangi upp að öðru leyti og það verði engin óvænt áföll. 43 milljarða kr. halli er kynntur sem eitt stórt núll í trausti þess að eftir rúmt ár verði menn búnir að gleyma því sem var sagt í þetta skiptið, rétt eins og því var treyst fyrir ári síðan að við myndum gleyma því sem var sagt um þau fjárlög sem við erum að starfa eftir núna. Og hver er að verða niðurstaðan með þau, meira að segja að mati fjármálaráðuneytisins sjálfs? Þeim var skilað með 15 milljarða kr. halla en eftir að þau fóru í gegnum þingið var hallinn áætlaður 28 milljarðar. Nú telur fjármálaráðuneytið sjálft að hallinn verði líklega í kringum 70 milljarðar. Úr 15 milljarða kr. halla í frumvarpinu í 70 milljarða kr. halla í raunveruleikanum. Það er þrátt fyrir hvalrekann eða búhnykkinn óvænta þegar ríkinu hlotnaðist allt í einu 40 milljarðar kr. vegna sölu hugverkaréttinda Keresis. Ef það hefði ekki komið til sögunnar þá værum við líklega á þessu ári að horfa fram á 110 milljarða kr. halla út frá fjárlögum sem þessi ríkisstjórn kynnti sem fjárlög upp á 15 milljarða kr. halla. Hvernig halda menn að þetta verði að ári? Ég er dálítið hræddur um það að menn eigi eftir að verða fyrir vonbrigðum þegar næsta ár verður gert upp en þá hvet ég fólk til þess að muna hvernig þetta fjárlagafrumvarp var kynnt núna, hvað var sagt um það og myndina góðu. Ég held að hún geti hjálpað okkur við það, en umfram allt að muna að það gengur ekkert upp hjá þessari ríkisstjórn. Það sem hún segir stenst ekki, það sem hún gerir bregst. Hún skilar rangri niðurstöðu með það sem lagt var upp með, hún lærir ekki af reynslunni og hún gerir meira af því sem ekki virkar og jafnt og þétt minna af hinu.

Meginniðurstaðan af því að hafa skoðað fjárlagafrumvarpið, frú forseti, og bandorminn svokallaða er að það sé fullreynt með þessa ríkisstjórn og við þurfum nýja ríkisstjórn á Íslandi.