158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

barnavernd.

78. mál
[17:18]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Þetta er nú mál sem við komum inn á hér í stuttu andsvari, ég og hæstv. ráðherra, og varðar börn með fjölþættan vanda. Það er erfitt að afgreiða það í stuttum fyrirspurnum og svörum hérna eins og við blasti þannig að ég ætla aðeins að fara nánar yfir það mál.

Ég skildi hæstv. ráðherra þannig að þetta væri kannski einhver misskilningur — ég ætla ekki að leggja hæstv. ráðherra orð í munn — og ég upplifði orðin eins og verið væri að standa við stóru orðin, eins og ég vil kalla það sjálf. Það voru miklar yfirlýsingar þegar samkomulagið var gert og mikill fögnuður í hópi allra sem að þessum málum koma. Þetta snýst náttúrlega um þjónustuna við börnin. Þetta snýst um það hver er í færi til að fjármagna þessa þjónustu. Við þurfum að ræða um það þannig. Þetta er orðin gríðarleg áskorun fyrir sveitarfélögin mörg hver og þessi málaflokkur hefur orðið mikil áhrif á rekstur sumra stórra sveitarfélaga. Því var því tekið mjög fagnandi þegar samkomulag var gert og mátti leiða að því líkur að verið væri að taka málaflokkinn yfir. Vissulega fylgdi með síðar að þetta væru ekki öll börnin, það væru ákveðnir einstaklingar sem féllu innan einhverra skilgreininga.

En það sem málið snýst kannski um núna er að í vor kom umsögn frá Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Sambandið telur ríkið hreinlega brjóta samkomulagið með einhliða þrengingu vegna ónógs fjármagns. Það hafi kannski verið búnar til of miklar væntingar og það er í sjálfu sér alvarlegt mál. Reykjavíkurborg og fleiri aðilar hafa mótmælt þeirri skilgreiningu sem kemur fram í reglugerðinni sem birt var 14 til15 mánuðum eftir samkomulagið og segja hana mun þrengri en þeir gerðu ráð fyrir. Reykjavíkurborg bendir á að stór hópur barna falli utan samkomulagsins eftir að reglugerðin var birt án samráðs. Þetta eru bara orð Reykjavíkurborgar, sem er náttúrulega langstærsta sveitarfélagið hér á landi, en forystumenn þar telja að þetta muni sérstaklega koma niður á fötluðum börnum, börnum í fóstri og börnum í hlutavistun.

Það á því eftir að fá frekari umfjöllun, bæði í nefndinni og annars staðar, hvort þetta sé það sem að var stefnt eða hvort um einhvern misskilning sé að ræða eins og einhverjir gætu túlkað orð hæstv. ráðherra hér áðan. En það eru farnar að berast áhyggjur frá sveitarfélögum vegna þessa og við verðum að taka það alvarlega. Þetta snýst um þjónustu við börnin, að það verði ekkert rof á henni. Þetta snýst líka um áætlanir sveitarfélaganna sem nú eru í sinni fjárhagsáætlunargerð. Auðvitað er þetta mjög fjölbreyttur hópur og ástæður þjónustuþarfar mismunandi en við eigum örugglega eftir að takast á um þetta eða ræða þetta frekar og reyna að átta okkur á hver niðurstaðan verður.

Nýlega var viðtal birt við einn af bæjarstjórum stóru sveitarfélaganna, bæjarstjórann í Kópavogi, Ásdísi Kristjánsdóttur, þar sem hún lýsti yfir miklum vonbrigðum með þetta, rétt eins og Samband íslenskra sveitarfélaga hafði gert, og taldi þarna um brot á samkomulagi að ræða. Það eru stór orð en það er ljóst að sveitarstjórnarfólk hefur talið að samkomulaginu hafi fylgt loforð um að taka yfir ábyrgð og fjármögnun á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Sérfræðiteymin í sveitarfélögunum og annars staðar vita svo sem hvers konar hópar þetta eru, þetta eru margvíslegir hópar. En eftir því sem umsagnirnar bera með sér er u.þ.b. helmingur barna sem þurfa á þessari þjónustu að halda í raun skilinn eftir eftir að þessi reglugerð var birt og kynnt. Við getum tekist á um hvort samkomulag hafi verið brotið eða hvort menn hafi verið að túlka það á einhvern óréttlátan máta eða hvað það er en burtséð frá því langar mig kannski aðeins — ég sé að hæstv. ráðherra er hér enn þá en ég veit ekki hvort hún ætlar í andsvör. (IngS: Ég fer aldrei.) — Nei, þú ferð aldrei.

Þá langar mig aðeins að fá fram hjá henni viðhorf til þess — af því að nú er þetta allt sama fjármagnið, og við erum hér að takast á um hvor aðilinn eigi að borga, ríkið eða sveitarfélögin. Þetta eru skattpeningarnir okkar. Þetta eru allt sömu börnin. Þetta eru börnin okkar sem við viljum að fái viðunandi þjónustu, þótt sveitarfélögin fullyrði, og hafi fullyrt þegar þetta blasti við, að nú væru uppi alvarlegar spurningar um traust og trúverðugleika ríkisins þegar kemur að því að standa við sína samninga. Við getum farið kannski aðeins út fyrir það. Mig langar að fá viðhorf ráðherrans ef hún ætlar að koma hér upp í andsvör hvað það varðar hvernig hún sér fyrir sér — núna eru átök um hver eigi að borga fyrir þjónustuna og hvernig hún sé skilgreind — að við komum þessum málum í viðunandi horf; að við séum ekki að rífast um peninga hér og peninga þar.

Hvað þarf að gera? Börnin eru með gríðarlega mismunandi þjónustuþarfir. Það er fötlun og það eru greiningar og það er vímuefna- og fíkniefnavandi, geðheilbrigðisvandi og annað slíkt. Þurfum við að viðurkenna að um heilbrigðismál sé að ræða og taka þann hluta málsins fastar inn í samkomulag ríkis við sveitarfélög út frá þeim forsendum? Hvað sér hæstv. ráðherra fyrir sér að við getum gert til þess að bæta stöðu barna sem þurfa á svo gríðarlega sérhæfðri þjónustu að halda?