barnavernd.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það er ljóst að það á eftir að ræða þessi mál í þaula örugglega nú í vetur og í fleiri ár jafnvel, því að þetta er risastórt mál. En mig langar kannski að fá viðbrögð — af því að það var hörð gagnrýni og viðbrögð sem komu fram í sumar sem ég heyrði ekki viðbrögð hæstv. ráðherra við þá: Skilur hæstv. ráðherra samt þessi vonbrigði sem birtast frá sveitarfélögunum og áhyggjur þeirra miðað við hvernig fullyrt var og maður man að það voru stór orð höfð um að nú væri ríkið að létta á þessu og taka þennan málaflokk til sín? Skilur hæstv. ráðherra þau vonbrigði sem núna eru þá að koma upp?