barnavernd.
Frú forseti. Mig langar að taka stuttlega þátt í þessari umræðu hérna í formi andsvara. Við erum búin að þaulræða einmitt þetta samkomulag og ræddum það fram og til baka í vinnu nefndarinnar á síðasta þingi. En eins og fram hefur komið hjá ráðherra og við vitum öll þá dagaði málið uppi, jafnvel þótt það væri tilbúið að koma hér til lokaafgreiðslu í þingsal. Varðandi þetta samkomulag þá langar mig aðeins að nefna að kannski er varla hægt að segja eða ásaka eða saka ríkið um að brjóta samkomulag sem ekki er einu sinni komið í framkvæmd. Þetta er auðvitað bara núna samkomulag, þetta er á pappír, gert 18. mars. Það er líka stundum þannig að það er gert samkomulag, skrifað undir samkomulag en það eru kannski ekkert endilega allir sáttir með það. En samkomulag var engu að síður samþykkt og undirritað enda þótt annar aðilinn, sveitarfélögin, gengi kannski ekki endilega glaður frá borði. Þau höfðu væntingar til meira. Mér fannst það einmitt svo áhugavert sem kom fram hjá hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur þegar hún spurði hér í pontu áðan: Kannski voru þetta einmitt væntingar? Það er kannski málið.
En mín spurning er kannski þessi til þingmannsins því þingmaðurinn orðar þetta þannig að sveitarfélögin hafi séð þetta þannig að helmingur barna hafi orðið eftir: Hvað erum við þá að tala um stóran hóp af börnum? Hver er þessi helmingur barna sem varð eftir? Við erum jú að horfa á börnin sem þurfa langmestu þjónustuna og þurfa að sækja hana utan heimilis. En hópurinn sem talað er um að hafi orðið eftir, hvaða hópur er það og hvað er það stór hópur? Ég er með eina spurningu enn en ég ætla bara að fá að nota næsta andsvar.