barnavernd.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hve stór hópur er þá eftir? Það er talað um að það sé helmingur eftir en hver fjöldinn er nákvæmlega — hefur ekki verið talað um að mig minnir 130 börn í landinu? Það sé a.m.k. helmingurinn eftir samkvæmt þessu. Það er verið að túlka þetta þannig hjá sveitarfélögunum að það sé helmingur eftir af þeim hópi sem lagður var til grundvallar í samkomulaginu þannig að þetta er ekki nema brot í rauninni af því sem aðilar áttu von á að yrði leyst með þessu samkomulagi. En fjöldinn nákvæmlega í einstaklingum, ég er ekki með það.