158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

barnavernd.

78. mál
[17:38]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Forseti. Já, maður er búinn að heyra ýmislegt. Ég hef reyndar aldrei heyrt þessa tölu, yfir 100 börn, ég hef aldrei heyrt það. Við vitum hvað það er stór hópur sem mun falla undir þetta samkomulag, það eru um 34 börn sem eru þau sem allra mest þurfa þjónustu og þurfa að sækja hana utan heimilis. Það er svona nokkuð skýrt þó að það kunni að vera plús/mínus það. En seinni spurningin snýr kannski að þessu: Nú voru það mikil vonbrigði að málið náði ekki fram að ganga í vor og ég veit að þingmaðurinn veit það, þetta var tæpt, við héldum kannski um tíma að þetta myndi sleppa til en þetta þýðir að miklar tafir verða á gildistöku, kominn nýr gildisdagur sem er á næsta ári og síðan er talað um að það þurfi alveg hálft ár til að standsetja þetta nýja úrræði, ráða fólk og setja kerfið í gang. Það þýðir að það verður mjög mikil frestun á því að hægt sé að hefja þessa þjónustu í þessum málaflokki, svo ég tali nú ekki um allar aðrar breytingar í frumvarpinu sem eiga að taka gildi sem eru gríðarlega margar og hafa að gera með málsmeðferð og eftirlit og fósturforeldra og leyfi og guð má vita hvað, það er langur listi af þeim breytingum sem tefjast vegna þess að málið náði ekki fram að ganga. Mig langar að spyrja þingmanninn: Hvernig leið þingmanninum með þessar málalyktir í vor og hvað það þýðir fyrir börnin sem þarna eru undir og um ræðir, þ.e. hvað það verða miklar tafir á öllum þessum réttarbótum, þessum nýju lagastoðum sem hefðu ella komist í framkvæmd núna strax á næsta ári? Það tefst núna vegna þess að nú er málið að koma aftur til nefndar. (Forseti hringir.) Ég vil fá að heyra hvað þingmanninum finnst um þetta og hvernig henni hefur liðið í sumar með þessa staðreynd (Forseti hringir.) því að ég get sagt fyrir sjálfan mig að mér hefur liðið mjög illa yfir þessari töf.