barnavernd.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Það kom nú skýrt fram í umræðum í nefndinni og víðar og kom fram hjá þeim sem komu til fundar við nefndina að það skipti ekki alveg öllu máli, tímasetningin til eða frá, einhverjar vikur. En það sýnir sig með þessum viðbrögðum og með því hvernig við erum stödd með þetta mál og það mál sem við vorum að ræða hérna áðan, börn með fjölþættan vanda, að það borgar sig að vanda til verka. Það kom mjög mikil gagnrýni fram á fósturkaflann t.d. — af því að við erum að tala um barnaverndarlögin hérna, ekki bara börn með fjölþættan vanda, það er í rauninni bara brot af því sem þar er innan — og það kom fram hörð ábending um að það ætti ekki, það kom fram í umsögnum, og væri mjög bagalegt að ryðja þessu frumvarpi fram með þann hluta málsins eins og hann leit út á þeim tíma. Það sýnir sig kannski bara enn frekar núna að það borgar sig að vanda til verka.