158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.

75. mál
[17:42]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Tillagan er lögð fram á grundvelli 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og um er að ræða fyrstu heildstæðu stefnu og framkvæmdaáætlun íslenskra stjórnvalda á grundvelli laganna. Lagt er til að stefnan og framkvæmdaáætlunin gildi í fjögur ár eða til ársins 2030. Tillaga um stefnu um farsæld barna til ársins 2035 var fyrst lögð fram á 156. löggjafarþingi sem 283. mál. Við þinglega meðferð var kallað eftir því að framkvæmdaáætlun fylgdi stefnunni og að stefnan gilti í fjögur ár. Á 157. löggjafarþingi var því lögð fram tillaga um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030 sem 579. mál. Málið gekk til velferðarnefndar og fékk þar umfjöllun en nefndin lauk ekki afgreiðslu þess fyrir þinglok og er tillagan því lögð fram hér að nýju en hún hefur verið endurskoðuð frá síðasta þingi. Við endurskoðun tillögunnar hefur verið tekið tillit til þeirra mikilvægu ábendinga sem fram komu í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á innleiðingu farsældarlaganna sem birt var í júní síðastliðnum sem leiddu til þess að ný aðgerð bættist við um farsæld í framhaldsskólum. Aðrar aðgerðir hafa verið útfærðar nánar og framkvæmdatími þeirra uppfærður.

Meginmarkmið laganna um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er að börn og foreldrar sem á henni þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Lögin byggjast á þeirri einföldu en mikilvægu hugsun að þjónusta við börn og fjölskyldur eigi ekki að vera falin inni í flóknu kerfi heldur eigi hún að vera sem næst barninu sjálfu í daglegu umhverfi þess þar sem hægt er að bregðast snemma við. Það er kjarni málsins. Barn á ekki að þurfa að bíða eftir því að kerfin tali saman. Foreldrar eiga ekki að þurfa að knýja á ótal dyr til þess að finna aðstoð. Þjónustan á að mæta barninu þar sem það er statt hverju sinni og bregðast við áður en vandinn vex.

Tæp fimm ár eru liðin frá því að lögin voru samþykkt á Alþingi. Þau fela í sér grundvallarbreytingu á því hvernig við skipuleggjum þjónustu við börn og fjölskyldur. Í stað þess að hvert kerfi vinni út af fyrir sig eiga þjónustuveitendur að vinna saman með þarfir barnsins að leiðarljósi. Árangurinn er þegar farinn að koma í ljós. Í lok apríl á þessu ári, 2026, voru yfir 6.100 börn í virkri samþættri þjónustu um land allt.

Það eru 700 tengiliðir farsældar sem starfa í nærumhverfi barna um land allt, m.a. á öllum skólastigum og barnanna, á heilsugæslustöðvum og í félagsþjónustu. Þetta sýnir að þjónustan hefur færst nær börnunum og foreldrum þeirra. Aðgengi að þjónustu er betra og viðbrögð hafa orðið markvissari. Þetta eru mikilvægar framkvæmdir en við vitum líka að svo umfangsmikil kerfisbreyting verður ekki að veruleika með lagasetningunni einni saman. Fólkið sem veitir þjónustuna þarf að þekkja hlutverk sitt, verklag þarf að vera skýrt og þjónustan þarf að vera tiltæk. Þess vegna þurfum við sameiginlega stefnu og skýra framkvæmdaáætlun um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Hér er hún sem sagt lögð fram í dag.

Frú forseti. Þar sem málið er nú endurflutt tel ég rétt að fara yfir helstu breytingar sem hafa orðið á tillögunni frá því að hún var lögð fram á síðasta þingi. Í fyrsta lagi hafa aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar verið uppfærðar og styrktar til að bregðast við ábendingum í úttekt Ríkisendurskoðunar frá 10. júní 2026. Það skal tekið fram að þegar tillagan var lögð fram á 157. þingi var þegar búið að kortleggja helstu áskoranirnar við innleiðingu laganna og voru þær í góðu samræmi við ábendingar Ríkisendurskoðunar. Í öðru lagi hefur nýrri aðgerð verið bætt við framkvæmdaáætlunina, aðgerð nr. 8, sem lýtur að farsæld í framhaldsskólum. Reynslan og ábendingar Ríkisendurskoðunar sýndu að tryggja þarf mun betri samfellu í þjónustu þegar ungmenni færast úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla til að koma í veg fyrir að stuðningur rofni og draga úr brotthvarfi. Í þriðja lagi hefur framkvæmdatími aðgerða verið færður áfram til áranna 2027–2030 til samræmis við framlagningu þingsályktunartillögunnar á þessu löggjafarþingi.

Frú forseti. Tillaga sú sem ég tala hér fyrir er sett fram með þeim hætti að hún geti nýst sem leiðarljós við alla stefnumótun sem snýr að málefnum barna, hvort sem um er að ræða einstaka málaflokka eða réttindi barna almennt. Framtíðarsýn stefnunnar grundvallast á því markmiði að Ísland verði barnvænt land þar sem réttindi og farsæld barna sé í öndvegi, í samræmi við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 19/2013.

Tillagan hvílir á sex stoðum sem eru þessar: Í fyrsta lagi jafnræði. Þar er áherslan á jafnt aðgengi allra að þjónustu og sérstök áhersla sett á aðgengi barna í viðkvæmri stöðu. Í öðru lagi barnvæn nálgun og þátttaka. Þar er áhersla á að börn hafi raunverulega rödd í málum sem þau varða. Í þriðja lagi viðeigandi stuðningur. Þar er áherslan á að þjónusta á að vera rétt á réttum tíma og á réttum stað. Í fjórða lagi fræðsla, forvarnir og réttindi. Valdefling barna, foreldra og samfélagsins alls. Í fimmta lagi að framúrskarandi starfsfólk tryggi stuðning við tengiliði máls, stjóra og stjórnendur í öllum þjónustukerfum. Í sjötta lagi áreiðanleg gögn sem miða að því að ákvarðanir og forgangsröðun byggist á traustum upplýsingum og traustum mælikvörðum. Stoðirnar endurspegla þannig grundvallaratriði sem þurfa að einkenna alla þjónustu við börn, réttindi allra barna verði að vera virt, þjónustan þarf að vera samfelld og hún þarf að vera heildstæð. Sérstaklega verður að gæta að börnum í viðkvæmri stöðu því kerfi sem nær ekki til þeirra barna sem mest þurfa á stuðningi að halda nær ekki markmiði sínu.

Til að tryggja framgang stefnunnar er jafnframt lögð fram framkvæmdaáætlun með 16 mælanlegum aðgerðum. Þær snúa að nokkrum þeirra verkefna sem brýnast er að vinna áfram að. Ég vil nefna nokkrar þeirra sérstaklega: Samfellda miðlun upplýsinga og tæknilausnir. Þá er lögð sérstök áhersla á fræðslu og upplýsingar til barna og foreldra, þekkingu á réttindum og úrræðum sem er lykilforsenda þess að lögin skili þeim árangri sem að er stefnt. Börn og foreldrar þurfa að vita hvert þau geta leitað, hvaða stuðningur stendur til boða og hvernig þjónustan á að virka. Því er lögð áhersla á að þróa barnvænt fræðsluefni. Stytting biðlista og bættir þjónustuferlar, það eru aðgerðir 7 og10.

Í framkvæmdaáætluninni er einnig fjallað um kerfislægar hindranir. Þar má nefna aðgerðir sem snúa að bættu aðgengi að þjónustu, kortlagningu hindrana og leiðum til að stytta biðlista barna eftir þeirri þjónustu. Jafnframt er gert ráð fyrir heildarendurskoðun á þjónustuferlum fyrir börn með taugaþroskaraskanir. Sérstök áhersla er lögð á að efla sameiginlegan skilning og færni þeirra sem starfa með börnum. Við innleiðingu svona stórra kerfisbreytinga er lykilatriði að þjónustuveitendur þekki skyldur sínar og starfi út frá sameiginlegri sýn. Þess vegna er annars vegar gert ráð fyrir aukinni fræðslu, stuðningi og handleiðslu af hálfu Barna- og fjölskyldustofu og hins vegar markvissri fræðslu fyrir stjórnendur innan menntakerfisins, félagsþjónustunnar og heilbrigðiskerfisins.

Síðan kemur hér farsæld í framhaldsskólum, aðgerð 8. Í lokin vil ég minnast á eina aðgerð sem er ný en hún snýr að því að efla samþætta þjónustu í framhaldsskólum. Aðgerðin er bæði viðbragð við ábendingum sem bárust við þinglega meðferð málsins og ábendingu Ríkisendurskoðunar um skort á samfellu þegar börn færast úr grunnskóla í framhaldsskóla. Verkefnið er brýnt þar sem núverandi farsældarkerfi nær ekki jafn skýrt til framhaldsskólaaldurs og til yngri skólastiga. Þar þarf að tryggja betri samfellu í þjónustu þegar börnin flytjast á milli skólastiga og efla tengsl framhaldsskóla við heilbrigðis- og félagsþjónustu. Með því er hægt að bregðast fyrr við vanda framhaldsskólanema og draga úr brotthvarfi.

Virðulegi forseti. Með þessari stefnu og framkvæmdaáætlun setjum við skýran ramma um næsta áfanga innleiðingar farsældarlaganna. Við festum í sessi þá sýn að þjónustan skuli vera nær barninu, að brugðist skuli fyrr við og að stjórnvöld vinni saman með markvissum hætti. Aðgerðirnar þurfa að vera mælanlegar, tímasettar og fjármagnaðar. Annars verða góð áform ekki að raunverulegum umbótum í lífi barna. Við berum sameiginlega ábyrgð á því að þjónustan virki fyrir hvert barn, óháð því hvar það býr eða hvaða aðstæður það býr við. Fjárfesting í farsæld barna er réttlætismál gagnvart börnunum sjálfum. Hún er jafnframt skynsamleg fjárfesting í samfélaginu, því snemmtækur og samfelldur stuðningur getur komið í veg fyrir að vandi vaxi og verði erfiðari viðureignar síðar.

Mig langar af þessu tilefni að segja ykkur frá því pínulítið, hv. þingmenn, þeir sem á hlýða og frú forseti, að þegar ég kom inn í barna- og menntamálaráðuneytið og var að kynna mér farsældarlögin og markmið þeirra þá fannst mér þetta vera óttalega flókið og snúið og ég var ekki alveg að ná utan um það. Það tekur tíma að átta sig á því þegar svona mikið og stórt mál er í mótun hvernig það raunverulega virkar. Síðan hef ég fengið í heimsókn til mín í ráðuneytið frá aðilum sem búa bæði á Vestfjörðum, Akranesi og fleiri stöðum þar sem hefur gengið ótrúlega vel að innleiða þessa farsæld, þar sem mikill árangur hefur náðst. Þar sem börnin eru gripin strax, þau þurfa ekki að bíða, þau eru ekki að þvælast á milli kerfa, það er ekki verið að bíða í þrjá mánuði eftir að það sé gripið inn í. Nei, það er gert strax og ekki nóg með það. Þetta hefur komið í veg fyrir mýmörg ný barnaverndarmál. Þá þótti mér mjög athyglivert að á meðan börnin voru að þvælast á milli, eins og hefur verið fyrir inngildingu og innleiðingu farsældarinnar, hafa börnin og fjölskyldur þeirra algjörlega lent í því að mál hafa ratað til barnaverndar.

Þessi breyting sem við erum að verða vitni að hér og nú, eins og ég segi við alla mína góðu félaga í hvaða flokki sem þeir standa: Farsæld barnanna okkar og allt það sem lýtur að framtíðinni og börnunum okkar á að vera hafið yfir pólitík, það er hafið yfir alla pólitík. Það er mín bjargfasta trú og þar slær mitt hjarta og mér er sama, ég segi bara að við tökum saman höndum hvar í flokki sem við stöndum. Það eru risaáskoranir gagnvart börnunum okkar sem við erum með í fanginu, risaáskoranir og ég trúi því af öllum mætti að saman getum við tekið algjörlega á þessum málum, hvort heldur sem lýtur að erfiðleikum barnanna okkar í náminu, þeirra sem í rauninni hafa ekki verið að skora nógu hátt í nýútkominni PISA-könnun, hvað eina annað sem er. Við getum þetta. Ég veit það og ég trúi því af öllu hjarta. Núna þegar ég hef gert grein fyrir meginefni tillögunnar legg ég til að henni verði að þessari og síðari umræðu lokinni vísað til hv. velferðarnefndar og að við séum í rauninni tilbúin til að taka saman höndum og gera hlutina eins fallega og við getum mögulega gert fyrir framtíð barnanna okkar.