158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.

75. mál
[17:57]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég heyri það að hjörtu okkar slá í takt og að hv. þingmaður skilur markmiðið svo sannarlega. Jú, við sjáum náttúrlega miklar framfarir núna bara á síðasta ári, bara á milli áranna 2025 og 2026, þar sem vel yfir 6.100 börn og fjölskyldur þeirra hafa núna nýverið notið farsældarinnar og hafði það aukist um yfir 30% á milli ára hversu mikið var leitað í þjónustuna. Það skiptir öllu máli, eins og hv. þingmaður bendir á, að við grípum barnið strax og komum til móts við fjölskyldurnar og séum með snemmtæka íhlutun. Við bættum við varðandi nemandagrunninn þar sem við færðum það alveg niður í leikskólaaldur þannig að nú erum við búin að ná utan um litla einstaklinginn frá því hann fer í leikskólann og þar til hann er að koma úr framhaldsskólanum sínum. Það eru mjög miklar væntingar gerðar. Ég finn það bara þar sem hlutirnir hafa fengið að þróast aðeins lengur og þar sem hefur verið meiri og skýrari þátttaka þá eru stórkostlegir hlutir að gerast og bundnar miklar vonir og væntingar við farsældina. Það fallegasta í stöðunni í dag er að við skulum vera að tengja farsældina núna, ég er að koma með hana samhliða barnaverndarlöggjöfinni okkar þannig að við erum að fara að sýna það í verki hér á hinu háa Alþingi hvar hjarta okkar slær. Ég er ofur stolt af því að fá að flytja þessi mál og fylgja þeim eftir því að þetta er búið að vera í vinnslu, eins og barnaverndarlöggjöfin frá 2018, frá því löngu fyrir mína tíð. Fyrrverandi hv. þingmaður og hæstv. ráðherra Ásmundur Einar Daðason fylgdi því vel eftir og þetta var hans hugarfóstur svo mjög. Þannig að ég er mjög stolt af því að fá að taka það í fangið og fylgja því eftir af því að þetta er, eins og ég segi, landamæralaust verkefni að mínu viti og við eigum aldrei nokkurn tímann að blanda pólitík í það.