stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar sem var mjög athyglisvert. Farsældin okkar byrjar í rauninni með barni í móðurkviði, á meðgöngunni. En ég tek alveg undir það að við þurfum að efla mjög mikið stuðning við foreldra. Þess vegna höfum við í Flokki fólksins verið mjög hlynnt því að gefa þeim foreldrum kost á því að vera lengur heima með börnum sínum heldur en til 12 mánaða eða eitthvað slíkt. Ef einhver vill frekar vera heima en að setja barnið á leikskóla þá léttum við á biðlistum inn á leikskólana fyrir utan það að foreldrarnir verða heima og þeir eiga að fá greitt fyrir það. Ég tek því undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt bæði að styðja við foreldrana og aðstoða á fyrstu árum barnsins. Þar fer sannarlega mikill þroski og félagsþroski fram og talið er að barnið búi að því alla sína ævi hvernig því líður á fyrstu árum ævinnar. Ég tek alveg undir með hv. þingmanni, þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða. En mér finnst líka að við höfum verið of kappsöm um að láta börnin í fóstur eða í umönnun. Þó að það séu fagaðilar og góðir aðilar þá skiptir máli, finnst mér, og ég hef séð það, bæði í gögnum og skýrslum sérfræðinga, að tengingin skiptir mjög miklu máli við foreldrana og t.d. brjóstagjöf og allt þetta nána skiptir mjög miklu máli fyrir barnið. Það er mín bjargfasta trú, þannig að ég tek undir með hv. þingmanni að þetta eru allt saman hlutir sem við þurfum að skoða. En farsældin sem við erum að mæla fyrir hér í dag hefst í rauninni þegar barnið er í móðurkviði.