158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.

75. mál
[18:15]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu, Jóni Pétri Zimsen, og auðvitað slá hjörtu okkar í takt í þessum málum eins og í menntamálunum. Ég segi bara að það sem kemur fram í athugasemd Ríkisendurskoðunar nú í sumar, þar sem hann talar um að miða við núverandi stöðu, það er þáverandi staða. Við tókum strax til óspilltra málanna þannig að núverandi staða er öll önnur og við erum búin að bregðast við þeim ábendingum sem Ríkisendurskoðun gerði. En mig langar, hv. þingmaður, til að segja að í lok apríl 2026 voru 6.112 börn í virkri samþættri þjónustu samanborið við 4.669 á sama tíma árið áður. Við erum með ákveðin gögn, þó svo að ég geti tekið undir það með hv. þingmanni að þetta hökti heldur betur í gang. Þetta hökti en það er ýmislegt sem höktir svona til að byrja með þegar um stórar kerfisbreytingar er að ræða. En núna eru öll tannhjólin að smyrjast og komið mismunandi áleiðis úti um landið, en þó svo. Ég er hérna með ákveðnar tölur sem sýna að Farsældarráð Suðurnesja þróaði t.d. farsældarvísi til að meta árangur innleiðingar laganna. Vísirinn byggist á 91 vísi úr Íslensku æskulýðsrannsókninni um líðan og stöðu barna og bendir til þess að líðan hafi batnað í öllum aldurshlutum frá upphafi innleiðingar farsældarinnar. Lífsánægja hefur aukist að mati barnanna, hlutfall barna sem finna fyrir kvíða hefur lækkað úr 34% í 28% frá 2023, hlutfall þeirra sem segjast hafa leyst vandamál sín hefur hækkað úr 42% í 52% og hlutfall barna sem skrópa í skóla hefur lækkað úr 30% í 20%. Allt eru þetta jákvæðar vísbendingar um að líðan barna sé á uppleið og það kemur einnig fram í PISA-könnuninni okkar frægu þar sem lífsánægja íslenskra barna er sú þriðja hæsta meðal þessara landa, þannig að áfram veginn. Mér sýnist, hv. þingmaður, að við séum bara með bjart fram undan.