stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir síðara svar við engri fyrirspurn. Mig langaði til að koma með nokkrar dæmisögur, sannar sögur úr kerfinu okkar, af því að ég veit að hv. þingmaður brennur fyrir því að fá að vita hvernig það er að reynast. Saga hér af tíu ára barni sem átti foreldra sem voru að skilja. Barnið var í erfiðleikum en ekki komið í alvarlegan vanda. Tengiliður í skólanum gaf því tíma til að segja frá, foreldrarnir fengu viðtal og stuðning, kennarar, námsráðgjafi og knattspyrnuþjálfarinn voru upplýstir, engin barnaverndarkönnun, enginn djúpur vandi, bara réttur stuðningur á réttum stað og réttum tíma. Barnið orðaði það sjálft: Ég er miklu öruggari núna. Ég veit við hvern ég á að tala.
Önnur lítil saga: Drengur með staðfestar fötlunargreiningar flutti til Árborgar og byrjaði í sínum þriðja grunnskóla á Íslandi. Foreldrarnir töluðu hvorki íslensku né ensku. Áður hefði slíkur flutningur þýtt margra mánaða þjónusturof en nú fluttust greiningargögnin og þjónustuáætlanir með á milli sveitarfélaga fyrir fram. Skólaþjónusta, frístundaakstur og einstaklingsstuðningur voru tilbúin á fyrsta skóladegi og túlkunin tryggði að foreldrarnir sætu við borðið. Fjölskylda með fleiri en eitt barn með miklar stuðningsþarfir átti áður í samskiptum við fjölda þjónustuaðila í mörgum samhliða ferlum. Einn málstjóri tók yfir heildarmyndina, tvíverknaður hvarf og álagið á foreldrana léttist.
Þetta er raunveruleg hagræðing. Dæmi eru um færri óþarfafundi og að mál séu leyst á fyrsta eða öðru þjónustustigi svo að barnavernd geti einbeitt sér að þyngstu málunum. Þetta eru raunverulegar sögur af því hvernig farsældin okkar virkar þar sem hún er að virka þannig að ég segi: Hv. þingmaður, getum við ekki verið sammála um að þetta sé í rauninni frábært? Þarna kom ég nú með eina smá létta.