158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.

75. mál
[18:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagninguna hér og ræðuna. Ég hefði nú farið í andsvar ef ég hefði náð því áðan þannig að mér þætti vænt um ef ráðherra hefði tök á að svara þeim spurningum sem ég kann að hafa um þetta mál. En ég ætla að byrja á því að hrósa fyrir það að þetta sé komið núna inn í tíma. Þetta mál, eins og ráðherra fór yfir, er endurflutt en það var mælt fyrir því hér í lok mars á síðasta ári. Þar af leiðandi er bara eðlilegt út frá takti þingsins að ekki sé hægt að afgreiða málið og þess vegna vil ég hrósa sérstaklega fyrir það að það sé komið inn tímanlega núna sem gefur þá nefndinni og þinginu kost á að vinna málið vel og vandlega.

Fyrst langar mig að byrja á að segja það að ég hef nú verið þingmaður hér í næstum því tíu ár þannig að ég var hér þegar farsældarlögin voru samþykkt. Mér finnst hugmyndafræðin á bak við farsældarlögin frábær. Hæstv. þáverandi ráðherra, Ásmundur Einar Daðason, var mjög annt um þennan málaflokk, eins og ég veit að núverandi hæstv. ráðherra er og ég veit að þingheimur getur allur sameinast um það. Hugmyndafræðin á bak við það að grípa börn nógu snemma og kostnaðarútreikningarnir, ég ætla ekki að segja -matið, sem voru lagðir fram í tengslum við þetta frumvarp á sínum tíma voru í raun að selja okkur þá hugmynd að með því að standa vel að þessu þá myndum við spara umtalsverða fjármuni síðar meir vegna þess að það væru færri einstaklingar sem rötuðu út af hinni beinu braut. Við gætum sparað í fangelsismálum ef á það var litið. Það var farið alveg svo langt í því að tala um mikilvægi þessa máls. Ég er ekki ósammála þessari grunnpælingu, grunnhugmyndafræði um það að ef við grípum börnin snemma, ef við bregðumst strax við, getum við náð miklum árangri.

Virðulegur forseti. Ríkisendurskoðun skilaði þinginu hér stjórnsýsluúttekt í júní síðastliðnum og ég sé að í greinargerð frumvarpsins er talað um að það sé með einhverjum hætti verið að bregðast við þessari úttekt. Fyrstu viðbrögð mín voru: Er það? Vegna þess að það sem ég man alla vega eftir í umræðunni þegar ríkisendurskoðandi kom og kynnti þetta fyrir okkur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd var nú meira bara að það hafi vantað fjármunina og kannski seigluna til að fylgja eftir þeim markmiðum sem sett voru fram í lögunum sjálfum. Mér finnst það ekki koma alveg nógu skýrt fram. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra vilji bregðast við þeirri skoðun minni en alla vega beini ég því til nefndarinnar að þau skoði það sérstaklega. Á bls. 5 í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar segir, með leyfi forseta:

„Ríkisendurskoðun gagnrýnir svör ráðuneytisins og telur þau hvorki í samræmi við umrætt kostnaðarmat né það sem fram kemur í greinargerð frumvarpsins. Ríkisendurskoðun telur svörin til marks um að ráðuneytið skorti skýra sýn á þá viðbótarþjónustu sem felst í lögunum, þær þarfir sem til stóð að uppfylla og þann árangur sem að var stefnt.“

Það er kannski það sem gagnrýnin sneri mikið að. Ég held að það sé mikil samstaða um mikilvægi þjónustu við börn. Í þessari annars ágætu stefnu- og framkvæmdaáætlun ætla ég að fá að vera líka aðeins tæknileg og segja að mér finnst skorta á að hver og einn liður í framkvæmdaáætluninni sé kostnaðarmetinn. Ég sé hér mæta embættismenn í hliðarherbergi sem hafa örugglega unnið þetta og þeir þekkja til þess að í leiðbeiningum frá Stjórnarráðinu er ætlast til þess í framkvæmdaáætlun að liðir séu kostnaðarmetnir. Það er vissulega gert í greinargerð frumvarpsins, þá er í heildarmati á tímabilinu 2027–2030 gert ráð fyrir að ráðuneytið standi að fjármögnun aðgerðanna í framkvæmdaáætlun og heildarfjárhæðin sé um 820 millj. kr. Þar af fara 520 millj. kr. í áframhaldandi stuðning við svæðisstöðvar íþróttahéraða og ekki ætla ég nú að gagnrýna það. En nú erum við með fjárlög sem liggja hér fyrir þinginu. Í fjárlagafrumvarpinu er verið að taka 1,1 milljarð út sem tengist farsældinni og greiðslunni inn í jöfnunarsjóð. Það gæti verið að það hafi farið fram hjá mér en ég heyrði alla vega ekki að ráðherra hafi komið inn á það í framsöguræðu sinni. Við heyrum þetta auðvitað gagnrýnt hjá sveitarfélögunum því að sveitarfélögin áttu mörg hver mjög erfitt með að fóta sig í þessu nýja lagaumhverfi. Þótt að allir hafi verið mjög sammála þá tók mislangan tíma að ná innleiðingunni og þess vegna er eðlilegt að sveitarfélögin gagnrýni nú að það fjármagn sem ég held að hafi farið í gegnum jöfnunarsjóð, þessar 1.100 millj. kr., sé ekki til staðar nú.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að gagnrýna þær aðgerðir sem hér eru en það sem ég heyri úti í feltinu hjá bæði foreldrum sem eru með börn á biðlista, og ég veit að hæstv. ráðherra brennur jafn mikið fyrir því og sú sem hér stendur að eyða biðlistunum, og ég heyri það líka hjá starfsfólki í skólum og í sérþjónustunni að það vanti aðgerðirnar til að geta raunverulega þjónustað þessi börn. En þessi framkvæmdaáætlun gengur auðvitað meira út á formið, þ.e. að kortleggja, greina og skýra. En það er ekkert um það að leysa þarfir þeirra barna sem bíða eftir þessari þjónustu. Það kostar pening og við vitum það. Það kostar mikla peninga. Þannig að það er auðvitað eðlilegt, virðulegur forseti, að spurt sé hér og kannski er hæstv. ráðherra tilbúinn að svara því, að þessi kortlagning, greining og skýra hlutverk og svo endurskoðunin á að kosta um 800 millj. kr. Ég sé ekkert sérstaklega fjallað um það í fjármálaáætlun né í fjárlögunum en þar sé ég sparnað upp á 1.100 millj. kr. sem á að taka úr jöfnunarsjóði. Er leið hæstv. ráðherra til að fjármagna þessa framkvæmdaáætlun hér að taka 1.100 millj. kr. sem hugsaðar voru fyrir sveitarfélögin til að raunverulega sinna þeirri þjónustu sem lögin gerðu ráð fyrir, að taka þær og fjármagna þessa áætlun sem hér er?

Ég vona að ég fái svar við því og ég vona að bæði hv. fjárlaganefnd og hv. velferðarnefnd skoði þetta í meðförum þingsins. Að því sögðu þá er ekkert í þessari framkvæmdaáætlun sem ég get verið ósammála, alls ekki. Ég er sammála henni en ég vona líka að við getum sammælst hér um raunverulegar aðgerðir sem miða að því að útrýma biðlistunum og tryggja það að börnin okkar fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á og sem þau þurfa.