stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sína góðu og fínu ræðu og ég heyri að hjörtu okkar slái í takt sem er afskaplega ljúft að finna, bara eins og ég finn að þingheimur allur vill gera allt fyrir börnin okkar. Við stöndum frammi fyrir mjög stórum áskorunum.
Hv. þingmaður talar sérstaklega um jöfnunarsjóð. Ég finn mig knúna til að upplýsa hv. þingmann um það að upprunalega átti gildistími þessarar fjármögnunar að vera þrjú ár en við breyttum því síðan í fimm ár og það fellur niður um næstkomandi áramót. Fjármagnið var sem sagt upphaflega veitt til þriggja ára og síðan framlengt um tvö ár þannig að þessu fimm ára innleiðingartímabili er hér með að ljúka. Sá tími er liðinn og gert er ráð fyrir að sveitarfélögin séu í stakk búin til að taka við þessu hlutverki innan þess ramma sem þeim hefur verið skapaður. Og þá kem ég nú að aðalmálinu og það er mikilvægt að hafa það í huga — hv. þingmaður talaði hér um biðlista og annað slíkt sem hefur verið algerlega út úr öllu korti allan þann tíma sem ég hef verið þingmaður og maður hefur alltaf verið jafn hissa og alltaf jafn sár. En það er mikilvægt að hafa í huga að enn eru 700 millj. kr. sem renna í farsældina og verða þeir fjármunir nýttir til verkefna tengdum farsæld, m.a. í framhaldsskólum og í heilbrigðiskerfinu auk annarra mikilvægra verkefna. Verkefnin í þessari þingsályktunartillögu eru því fjármögnuð og rúmast innan fyrirliggjandi fjárheimilda. Í framkvæmdaáætluninni er einmitt fjöldi aðgerða sem styðja við innleiðinguna hjá sveitarfélögum, svo sem áframhaldandi stuðningur við svæðisbundin farsældarráð, stuðningur við málstjóra og tengiliði í störfum sínum, fræðsla til stjórnenda, aðgerðir til að stytta biðlista og þjónustufarvegi. Allt eru þetta aðgerðir til að styðja við sveitarfélög í störfum sínum. Auðvitað þarf að ræða betur við sveitarfélögin um framhald verkefnisins sem lofar náttúrlega mjög góðu og við erum þar ekkert að draga lappir eða eitt eða neitt og munum ekki leggja meira á þau en þau geta borið. En farsældina höfum við svo sannarlega verið að innleiða og samanlagt núna t.d. erum við að setja … (Forseti hringir.) — já, ég er hætt í bili.