stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér í andsvar og bregðast við þessum vangaveltum mínum. Ég hygg að hæstv. ráðherra viti það jafn vel og ég að sveitarfélögunum er brugðið. Ég hef fengið allmörg símtöl. Ég átta mig á því að þetta var tímabundin fjármögnun við innleiðingu og eins og hæstv. ráðherra fór hér yfir var sú fjármögnun líka lengd. Ríkisendurskoðandi bendir einmitt á að innleiðingunni sé kannski ekki fyllilega lokið þannig að það má alveg velta fyrir sér hvort sveitarfélögin þurfi enn þann stuðning sem var ætlaður fyrir innleiðinguna.
Hæstv. ráðherra talar hér um 700 milljónir í farsældina. Ég hygg að það sé verið að vísa í framkvæmdina sjálfa ef ég skil hæstv. ráðherra rétt. Ég fann það ekki í fljótu bragði í fjárlagafrumvarpinu en ef það eru aukapeningar þar þá fagna ég því svo sannarlega og efast ekki um að hæstv. ráðherra muni koma því í góð not til að tryggja að farsældin virki. Ég bæti kannski bara við þessar spurningar mínar sem ég átta mig á að eru kannski svolítið tæknilegs eðlis: Liggur fyrir greining á því hvað hver og einn liður í framkvæmdaáætluninni kostar? Eins og ég sagði þá færi betur á því að framkvæmdaáætlunin væri — það er gott að þar eru settir ábyrgðaraðilar, við áttum okkur á því að oft flæðir þetta á milli mismunandi ráðuneyta en ekki síður milli stofnana líka og sveitarfélaga. Liggur fyrir áætlun um það hvað hver og einn liður í framkvæmdaáætluninni kostar, því heildarupphæðin er gefin þarna í kostnaðarmatinu? Ef svo væri þá væri ágætt, held ég, fyrir nefndina sem slíka að hafa það. En ég tek undir það sem hæstv. ráðherra sagði hér áðan, það þarf að ræða þetta betur við sveitarfélögin. Sú sem hér stendur hefur mikla reynslu af því að vera sveitarfélagsmegin og reyna að ræða við ráðherra og þing um fjárveitingar en líka reynslu frá því að hún kom hingað inn af því að eiga þessi samtöl við sveitarfélögin. Miðað við þann ugg sem ég heyri í sveitarfélögunum þá (Forseti hringir.) hvet ég hæstv. ráðherra til þess að taka samtalið við sveitarfélögin um það hvernig við ætlum að tryggja þann árangur sem að var stefnt með farsældarlögunum.