158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.

75. mál
[18:47]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég gleymdi að geta þess sem skiptir mjög miklu máli í öllu samhengi að nú erum við líka að bæta einmitt 350 milljónum við til þess að fara að vinna á biðlistunum á næstu tveimur árum, núna næstu tvö ár. Það liggur fyrir og gert ráð fyrir því alls staðar.

Hv. þingmaður spyr hvort við séum búin að greina þetta niður í öll box, ef svo má að orði komast. Þarna erum við með um 800 milljónir og auðvitað greinum við það niður þar sem hlutirnir eru raunverulega að gerast. Það er náttúrlega eins og liggur fyrir mjög mislangt á veg komið hvernig gengur í rauninni að innleiða farsældina. Það gengur mun betur á einum stað en öðrum eins og glögglega hefur komið í ljós og í rauninni er það mjög ánægjulegt, hv. þingmaður missti náttúrlega af því þegar ég var að segja frá því, þegar ég fékk gesti í heimsókn frá t.d. Akraneskaupstað og að vestan og af fleiri stöðum þar sem hlutirnir hafa gengið alveg frábærlega. Það eru þarna vel yfir 6.000 börn og fjölskyldur sem þegar eru farin að nýta sér þessa þjónustu og það er mikill vöxtur á milli ára núna þannig að það sést á þróuninni að smám saman eru tannhjólin okkar að liprast og smyrjast. Það standa vonir til þess auðvitað, þó svo að þetta hafi tekið svona langan tíma. Þetta er mjög þungt og stórt kerfi og eðli málsins samkvæmt er þessi vél okkar oft lengi í gang. En það er allt að gerast núna og miklu betur og við því sem ríkisendurskoðandi var að gera athugasemdir við í sumar var brugðist og er búið að laga. Það er sérstaklega ánægjulegt að segja að þessi þáttur hans í sambandi við flæðið upp í framhaldsskólana og annað slíkt, hvernig við ættum að vera með samþættu þjónustuna lengra upp — þessu hefur verið brugðist við og þetta er fjármagnað, hv. þingmaður, þannig að það er það gleðilega.