158. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2026.

sveitarstjórnarlög.

5. mál
[19:21]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og fagna því að hann sé nú orðinn a.m.k. hlutlaus til þessarar tillögu vegna þess að mér fannst hann heldur neikvæður á síðasta löggjafarþingi til þessa máls. Kannski olli þar að sveitarstjórnarkosningar voru á næsta leiti. En t.d. eins og borgarstjórnin er skipuð núna hafa menn haft, hefur mér virst, áhuga á því að skoða þessi mál og ég vek athygli á því að fjöldi íbúa á bak við hvern einasta borgarfulltrúa í Reykjavík er helmingi færri en íbúafjöldi á bak við borgarstjórnina í stærstu borgum Norðurlandanna, þ.e. það eru tvöfalt fleiri íbúar á bak við hvern borgarfulltrúa í þeim löndum í kringum okkur, fyrir utan að það er ekki full atvinna að vera borgarafulltrúi í þessum löndum. Ég velti því fyrir mér og hvet hv. nefnd sem fær málið til umfjöllunar að skoða virkilega þetta lagafrumvarp mitt sem ég hef lagt fram aftur ef það mætti verða til þess að frumvarpið sjálft tæki breytingum, af því að ég held að nú sé lag.