staðfesting ríkisreiknings 2025.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurninguna. Ég deili með henni áhyggjum af því að fjárfestingarheimildir hafi ekki gengið út. Þetta er að vísu ekki nýtt fyrirbæri og hefur verið vaxandi vandamál um allnokkurt skeið. Þessar heimildir hafa verið að safnast upp. Fyrir því eru ýmsar skýringar. Þeirra er ekki að leita, að sjálfsögðu, í skorti á fjármagni heldur í því að verkefnin ganga ekki eins hratt og áætlanir gerðu ráð fyrir. Að einhverju leyti má rekja það til eðlilegra atriða sem hafa með tímaáætlanir að gera sem af ýmsum ástæðum hafa raskast, en að einhverju leyti má rekja það til kæruferla og tafa sem ég held að sé full ástæða til að hafa áhyggjur af.
Ég hef áður gert það að umtalsefni í þessu ræðupúlti að það eru jafn mörg kærumál hjá kærunefnd útboðsmála í Danmörku og hjá íslensku kærunefndinni þrátt fyrir að danska hagkerfið sé margfalt stærra en íslenska hagkerfið og af því er full ástæða til að hafa áhyggjur.