staðfesting ríkisreiknings 2025.
Forseti. Mér þykir persónulega leiðinlegt að heyra að við hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir séum ekki lengur sammála. En það sem hefur farið fram úr í þessum ríkisreikningi eða á árinu 2025, eins og svo sem mjög mörg ár þar á undan, eru fyrst og fremst liðir, ef við erum að tala á GFS-grunni, þar sem ríkið ræður einingaverðinu en ekki magninu og þar sem magnið hefur reynst meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ég hef ítrekað í ræðustól farið yfir að ég tel að þarna þurfi að gera töluvert mikla bragarbót. Það eru í dag fyrst og fremst þrjú verkefni í gangi á vegum fjármálaráðuneytisins. Í fyrsta lagi aukin eftirfylgni með framkvæmd fjárlaga, sem ég held að sé mjög mikilvægt. Í öðru lagi endurmat útgjalda, sem er verkefni sem við höfum unnið með OECD og ég bind líka miklar vonir við, og í þriðja lagi það skref sem þessi ríkisstjórn tók til að ljúka innleiðingu rammasettra ríkisfjármála. Ég held að sá agi sem því eigi að fylgja sé mjög nauðsynlegur en eftirfylgnin skiptir líka gríðarlega miklu máli.