ársreikningar.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir andsvarið. Ég er sammála því að þetta er mjög gott mál. Eins og ég kom inn á í ræðu minni felur þetta fjögur atriði í sér. Þar af eru tvö innleiðingarmál og hitt er það sem bætt var við til einföldunar þar sem tekið er mið af sérstöðu okkar sem lýtur að þessum smærri fyrirtækjum. Við erum svo sem með fleiri hugmyndir til einföldunar en í ljósi þess að málið dagaði uppi síðastliðið vor — það skiptir fjölmörg fyrirtæki miklu máli að ná þessu í gegn og ég veit að það er brjálað að gera hjá endurskoðendum, og það eru fleiri sem þetta mál varðar — ákváðum við að fara ekki í frekari efnisbreytingar á málinu. En við tökum því fagnandi og lýsum okkur reiðubúin ef óskað er eftir aðstoð okkar við einhvers konar vinnu við að stækka regnhlífina yfir þessi einföldunarmál, svo sannarlega.