158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

ársreikningar.

77. mál
[15:41]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina og fyrir að koma aftur fram með þetta mál sem ég tel vera mjög brýnt. Ég hef enda lagt fram sambærilegt mál að hluta til í nokkur skipti hér á Alþingi. Mig langaði til að hrósa hæstv. ráðherra fyrir margt sem er þarna að finna, m.a. varðandi hækkun viðmiðunarfjárhæða og breytingu á flokkun. En mig langar að spyrja út í — í greinargerð með frumvarpi hæstv. ráðherra er vísað í ársreikningatilskipun ESB og tvær til viðbótar — endurskoðunarskylduna, í 98. gr. núgildandi ársreikningalaga. Hér leggið þið til að hækka viðmiðunarmörkin út af verðþróun, eins og ESB hefur þegar gert og farið er yfir í greinargerðinni, en af hverju er hreinlega ekki miðað við almenna stærðarflokkun ársreikningalaga og lítil félög eða örfélög þar með undanskilin? Það er í samræmi við lágmarkskröfur ársreikningatilskipunar ESB. Af hverju göngum við lengra?