158. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2026.

ársreikningar.

77. mál
[15:48]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það hefur nú mestallt komið fram hér þegar við þessa snörpu umræðu, enda er hún endurtekin. En aðeins til að fara betur ofan í það sem við hæstv. ráðherra ræddum nú rétt í þessu þá er einmitt kveðið á um það í reglum um þinglega meðferð EES-mála að við stöfum þetta ofan í fólk, með leyfi forseta:

„Að hvaða marki frumvarpið hafi að geyma frávik frá upphaflegu ESB-gerðinni. Sérstaklega skal tilgreint ef gengið er lengra en lágmarksákvæði viðkomandi gerðar kveður á um og skal rökstuðningur fylgja slíkri ákvörðun. Tilgreina ber sérstaklega ef svigrúm er til staðar við innleiðingu.“

Þetta hefur því miður, virðulegi forseti, misfarist allt of oft. Ég er alveg sammála hæstv. ráðherra um að við eigum auðvitað að gera skýran greinarmun á þessu — þegar er verið að gera reglur þannig úr garði að þær séu innan einhvers ákveðins ramma en eigum samt að láta vita af því þegar við erum að ganga lengra en lágmarksákvæði kveða á um. En hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir þetta í ræðu sinni hér áðan.

En það er ánægjulegt að halda þessa ræðu og að við séum að fjalla um þetta mál í dag og ég hrósa hæstv. ráðherra aftur af því að ég þekki þetta mál ágætlega, eins og ég fór yfir hér áðan. Mig langar að nefna það aftur að á síðasta kjörtímabili skilaði þáverandi umhverfisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, skýrslu um gullhúðun til Alþingis sem sýndi okkur að í yfir 40% tilvika á tíu ára tímabili á hans málefnasviði var um gullhúðun að ræða. Við höfum auðvitað, sum hér á Alþingi, reynt að spyrna fótum við þessari reglusetningargleði sem á sér ýmsar orsakir, m.a. gert ítrekaðar tilraunir til að koma skikki á framkvæmd innleiðingar EES-reglna. Ég hef sjálf reynt að leggja mitt af mörkum, m.a. með svona afhúðunarfrumvörpum eins og hæstv. ráðherra kemur fram með í þinginu en líka með því að senda bréf til ráðherra og brýna þá og bréf til forsætisnefndar og ég er hér með mál inni í þinginu og við Sjálfstæðismenn um betri meðferð EES-mála í þinginu. Það var hafin heildarvinna við afhúðun í stjórnkerfinu og eftir því sem ég best veit hafa a.m.k. núverandi stjórnarliðar lýst yfir miklum áhuga á því að halda þeirri vinnu áfram og við sjáum það á þessu máli eða a.m.k. er einhver vinna í gangi við það. Ég fagna því og hvet hæstv. ráðherra til að láta til sín taka, sérstaklega líka til að skoða það hvernig þessi vinna fór fram í umhverfisráðuneytinu. Ég held að það sé þörf á því að gera svona úttektir í hverju einasta ráðuneyti.

En aftur að þessu máli. Hæstv. ráðherra hefur farið ágætlega yfir að hennar tillaga gengur út á það, a.m.k. að hluta, að vinda ofan af gullhúðun, samræma íslenskt regluverk regluverki annarra landa að innri markaði Evrópusambandsins. Það er auðvitað óásættanlegt að þegar ársreikningatilskipunin var innleidd á sínum tíma hafi verið ákveðið að hér skyldi vera gengið lengra en var skylt. Þetta er íslenskur ósiður, við gerum þetta mjög gjarnan. Við göngum lengra en við þurfum og látum ekkert sérstaklega vita af því. Það er auðvitað óboðlegt að með þessu sé verið að draga úr samkeppnisstöðu íslenskra félaga. Þannig að ég vonast til þess að við klárum þetta mál hér á þingi og hæstv. ráðherra leggi þá sitt af mörkum við að afhuga a.m.k. þennan þátt laganna. Hæstv. ráðherra nefndi hér sérstaklega ársverkin og að það yrði sérstaklega skoðað hvort þau ættu að vera eins og í hennar tillögu er lagt til, þrjú, eða eins og heimilt er innan ramma ESB-tilskipana, að það séu tíu ársverk. Ég tek undir með hæstv. ráðherra að það sé full ástæða til þess að þetta sé skoðað í þinglegri meðferð og ég mun fylgja því eftir í þinginu. Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir.