158. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2026.

þjónusta við börn með fjölþættan vanda.

[13:40]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem hún er nú búin að koma með áður. Kerfin eru tvö. Ég átta mig ekki alveg á því hvað hv. þingmaður á við. Það er nú á flestum sviðum í samskiptum ríkis og sveitarfélaga sem ríkið kemur að því að styðja ákveðin verkefni sem sveitarfélögin okkar eru að ráðast í. Í þessu tilviki er það algjörlega skýrt að sú reglugerð sem ég kom með í kjölfarið á þessu samkomulagi sem gert var í mars í fyrra byggist eingöngu á samkomulaginu og í rauninni engu öðru.

Ég hefði hins vegar búist við því að hv. þingmaður hefði haft áhuga á því að vita hvað verður um Tækniskólann sem núna er búið að slá af í Hafnarfirði og er ítrekað búið að skrifa undir hérna og þar á meðal þegar hv. þingmaður var bæjarstjóri í Hafnarfirði. Það hefði verið áhugavert að fá í rauninni fyrirspurn um það þegar ég veit að hv. þingmaður þekkir málið vel og við vorum gjörsamlega í myrkrinu hér þegar var verið að skrifa enn og aftur undir þessa viljayfirlýsingu í vor um að byggja skólann í Hafnarfirði.

En hvað lýtur að þriðja stigs þjónustu er það skýrt. Sveitarfélög sjá sjálf, og algjörlega á sinni ábyrgð, um fötluð börn og öll börn í viðkvæmri stöðu sem fá þjónustu í heimahúsi. Það sem við erum að gera er að taka utan um og setja 3 milljarða, plús viðbótar 1,5 milljarða sem eru í öðru formi, inn í stuðning við börn með fjölþættan vanda. Allir þessir fjármunir fara til þess að styðja við sveitarfélögin og þann mikla kostnað sem því fylgir. Það eru nú um 18 börn búin að fá þessa þjónustu. Þau eru 34 á öllu landinu. Þar eru níu sem eru núna að bíða eftir að fá úrlausn sinna mála og að gengið sé frá samkomulaginu þannig að þegar upp verður staðið, hv. þingmaður, þá held ég að ég geti róað öll sveitarfélögin okkar með því að við skiljum ekkert barn (Forseti hringir.) sem þarf að njóta þriðja stigs þjónustu utan heimilisins eftir án þess að utan um það verði tekið.