leit að olíu og gasi.
Frú forseti. Ég mæli hér aftur fyrir þingsályktunartillögu um leit að olíu og gasi. Þetta mál á sér mjög langan aðdraganda. Undirbúningur hefur staðið í 500 milljón ár. Hann hófst með því að tvö meginlönd, Lárentía var annað kallað og Baltíka hitt, tóku að færa sig um set. Lárentía var leidd af því sem við köllum núna Grænland og Baltíka af Noregi. Þau ákveða að stefna saman, stundum á ógnarhraða, um meira en 13 cm á ári jafnvel. Það tók ekki nema 75 milljón ár áður en þessi tvö meginlönd rákust saman, keyrðu á og til varð gríðarlega mikill fjallgarður. Svo leiddi eitt af öðru og ég hef ekki tíma til að rekja það í stuttri ræðu en það var stórkostlega merkilegt. Það rigndi gríðarlega mikið þarna á þessum tíma, enn þá meira en gerir í Björgvin nú til dags og það var svakalega heitt. Það var heitara en á besta degi sumarsins á Egilsstöðum og það varð til mikið lífríki þarna. Um leið sá regnið um það að fjöllin lækkuðu smátt og smátt og ár færðu vatn inn að miðju og til urðu innhöf eða stöðuvötn þar sem var gríðarlegur lífmassi og steinefni og önnur jarðefni komu saman og það gerðust hlutir sem ég er ekki vel til þess fallinn að útskýra en það gekk allt upp. Til að gera mjög langa sögu mjög stutta leiddi þetta til þess að eftir að möndulhiti jarðarinnar hafði kokkað þetta í einhver hundruð milljóna ára urðu neðan jarðar til gríðarlegar birgðir af olíu og gasi.
Svo ákváðu þessi meginlönd að það væri nóg komið af þessu og þau skiljast að, fara aftur í sitthvora áttina. Eftir stendur Norður-Atlantshafið en undir því þessar auðlindir sem tók þetta langan tíma að framleiða. Þess vegna eru óhemjuolíu- og -gasauðlindir við strendur Noregs og reyndar líka, að því að talið er fullvíst, við strendur Grænlands. Bandaríska jarðfræðistofnunin telur að olíubirgðir við Grænland nemi um 16,5 milljörðum tunna af olíu og kann það að skýra að einhverju leyti aukinn áhuga sumra á Grænlandi.
En hvað með Ísland? Það vill svo heppilega til að þegar þessi meginlönd lönd skildust aftur að þá varð eftir allstór flís af þessum sama jarðvegi neðan sjávar og flísin er nú það stór að hún er kölluð meginland, örmeginland. Hér er átt við Jan Mayen-örmeginlandið, Jan Mayen-hrygginn. Þar undir eru að öllum líkindum, og rannsóknir hafa bent til þess að sú sé raunin, gríðarlegar auðlindir, gas og olía, og það vill svo vel til að mikið af þessu, stærstur hluti segja sumar rannsóknir, er innan lögsögu Íslands, sem er auðvitað stórkostlegt tækifæri fyrir okkar samfélag.
Menn höfðu nú næga skynsemi á sínum tíma til að semja með þeim hætti um skiptingu þessara auðlinda að Ísland kom vel út úr því, þótt ég taki auðvitað fram að ég telji að Jan Mayen eigi að vera hluti af Íslandi en Norðmenn eru drjúgir þegar kemur að því að gæta hagsmuna sinna og þeir halda Jan Mayen. Á móti eigum við Íslendingar rétt á 75% þessara jarðefna sem eru innan okkar lögsögu og 25% af því sem er utan okkar lögsögu, í þá lögsögu sem Noregur hefur stjórn á. Margir hafa nefnt Eyjólf Konráð Jónsson sem mikinn drifkraft í því að fá þessa niðurstöðu en hún getur reynst okkur afskaplega fengsæl ef stjórnmálamenn samtímans sýna sömu skynsemi og hyggjuvit og forverar þeirra gerðu og það leit út fyrir að sú yrði raunin.
Norðmenn urðu auðvitað fyrri til. Þeir fundu olíu 1969, höfðu byrjað 1966. Það gekk ekkert upp og ýmsar efasemdarraddir heyrðust en þeir gáfust ekki upp því að þeir höfðu stuðning stjórnvalda. Stefna stjórnvalda var sú að finna þessa olíu og það heppnaðist sumarið 1969 þegar risaolíulindin Ekofisk fannst. Líður svo tíminn og menn fara að velta fyrir sér hvort ekki sé ráð að Íslendingar leiti í þessar lindir, þann hluta sem varð eftir hér á okkar svæði. Ég minnist þess að fyrir kosningarnar 2009 var þetta til umræðu. Kolbrún Halldórsdóttir, síðar umhverfisráðherra Vinstri grænna, hafði orð á því rétt fyrir kosningar að jafnvel þótt það fyndist olía í íslenskri lögsögu þá væri ekkert víst að við ættum að nýta hana. Þetta var nóg til að það sama kvöld og þetta birtist í kvöldfréttum útvarps boðaði þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs til neyðarfundar þingflokksins og sendi frá sér tilkynningu um að Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefði aldrei ályktað um að Íslendingar ættu ekki að nýta olíu- og gaslindir sínar ef þær væru til staðar.
Svo er ráðist í þetta verkefni og undir lok ársins 2012 eru gefin út fyrstu leyfin til leitar hér. Það gekk nú bara prýðilega framan af og rannsóknir bentu til þess að þarna væri um óhemjuauðlindir að ræða. Terje Hagevang, sem þykir nú, að mér er sagt, færasti sérfræðingur Noregs í þessum jarðlögum við Noreg og svo því sem hér varð eftir við Ísland, telur að þarna séu jafn miklar ef ekki meiri auðlindir en í Noregshafi, þ.e. á Jan Mayen-örmeginlandinu. Rannsóknir gáfu jákvæðar vísbendingar en svo gerðist nú ýmislegt og of langt mál að rekja það þannig að horfið var frá leit um tíma. Það var ekki vegna þess að árangurinn af rannsóknunum lofaði ekki góðu. Það voru frekar pólitískar ástæður sem réðu því og blandaðist þar ýmislegt inn í, m.a. deilur Kínverja og Norðmanna vegna Nóbelsverðlaunaveitingar og stjórnarskipti í Noregi og fleira þegar í Noregi tók við ríkisstjórn sem studd var af flokki sem vildi enga frekari olíuleit. Síðan þá hefur það breyst og Norðmenn hafa gefið út hundruð nýrra leyfa síðan þá, en á Íslandi gerðust þau undur að við fengum ríkisstjórn sem gerði ítrekaðar tilraunir til þess að banna olíu- og gasleit, ekki bara nýtinguna heldur banna rannsóknir. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem slíkt hendir í vestrænu samfélagi um mjög langa hríð, að reynt sé að banna rannsóknir, en hv. þingmönnum Miðflokksins tókst að koma í veg fyrir þessar tilraunir og nú teljum við tímabært að halda áfram þar sem frá var horfið.
Það er að vísu til staðar áhugi og af því að það tókst að koma í veg fyrir bannið er enn þá leyfi til staðar til að fara í slíkar rannsóknir og reglur gilda um með hvaða hætti það skuli gert. En við teljum afskaplega mikilvægt að stjórnvöld sendi skýr skilaboð um að þau séu með þeim í liði sem gætu viljað koma að því að rannsaka þetta og nýta, því að það er óhjákvæmilega nauðsynlegt að fá fjárfesta og fólk og fyrirtæki með tækniþekkingu til að ráðast í svona stórt verkefni. Menn geta verið tregir til þess ef þeir óttast að stjórnvöld í landinu sem við er að eiga geti bara einn daginn tekið upp á því að banna svo mikið sem rannsóknirnar. Það er því afskaplega mikilvægt fyrir framgang þessa máls og nýtingu þessara tækifæra okkar Íslendinga að stjórnvöld sendi, með því að við á Alþingi samþykkjum þessa tillögu, skýr skilaboð um að við séum tilbúin að nýta þetta tækifæri.
Á undanförnum árum hefur eitt land náð miklu hraðari vexti en nokkuð annað efnahagslega. Það er Gvæjana í norðanverðri Suður-Ameríku. Þar fundust nefnilega gríðarlegar olíulindir. Ekkert land hefur náð eins miklum og hröðum efnahagslegum framförum frá því að ríkisstjórn Íslands réðst á árunum 2013–2016 í sínar miklu aðgerðir og sneri við efnahagsstöðu Íslands. Við þekkjum sögu Noregs sem er eitt ríkasta land heims og situr á gríðarlegum sjóðum vegna olíulindanna sem Norðmenn eru að nýta. Uppgötvun olíu og gass bjargaði í raun Bretlandi eftir hnignunarskeið og gjaldþrot sem seinni heimsstyrjöldin hafði leitt af sér og nú höfum við Íslendingar tækifæri til þess að nýta þær auðlindir sem við höfum almenningi öllum til heilla. Í þessari tillögu er rakið með hvaða hætti megi standa að því til að tryggja að þetta nýtist okkur öllum og farið verði vel með afraksturinn og hann nýttur skynsamlega til mjög langs tíma.
Þetta er tækifæri sem við megum ekki láta fram hjá okkur fara hvað sem líður öllum úrtölum og það hefur ýmislegt verið reynt. Því var haldið fram að það væri allt of djúpt þarna, að það þýddi ekkert að reyna þetta. Ja, með mikilli framþróun í tækninni fyrir olíu- og gasleit og -vinnslu þá er þetta ekkert dýpi sem veldur nokkrum einustu vandræðum. Miklu dýpra er t.d. víða á Mexíkóflóa þar sem á sér stað óhemjumikil vinnsla. Veðrið var síðan nefnt. Það er töluvert veðursælla á Drekasvæðinu en undan ströndum Noregs. Það er á úthafi en þar eru ekki fjöll sem skapa þá miklu storma sem eru við Noreg.
Svo eru það þau rök að við eigum einfaldlega að láta þetta liggja til að leggja okkar af mörkum í umhverfismálum. Menn hljóta nú aðeins að velta þessu fyrir sér eða endurskoða þegar þeir skoða staðreyndirnar. Notkun á olíu og gasi hefur vaxið jafnt og þétt hvað sem líður nýjum orkugjöfum. Það er óhjákvæmilegt og ég tel að enginn efist um það að notkunin muni aukast jafnt og þétt um fyrirsjáanlega framtíð. En það er æskilegt að nota meira af olíu og gasi frekar en kol. Það er ein besta leiðin til að draga úr mengun og losun gróðurhúsalofttegunda.
Viljum við Íslendingar fórna þessu tækifæri okkar og láta einfaldlega ríki á borð við Rússland, Sádi-Arabíu, Venesúela og Katar sjá um þetta, vera þeim háð? Í öllu þessu tali um breytta heimsmynd, væri þetta ekki eitt sterkasta framlag sem Ísland gæti komið með til þess að styrkja stöðu Vesturlanda og öryggi íbúa þeirra og ekki hvað síst og alveg sérstaklega Íslands? Þetta myndi hafa gríðarleg áhrif fyrir landið allt og ekki hvað síst í Norðausturkjördæmi. Bara leitin myndi strax leiða af sér gríðarlega fjárfestingu og uppbyggingu. Menn þekkja þessa sögu frá Noregi, t.d. Stafangri, sem er núna ein ríkasta borg Evrópu, sem þjónustar þennan iðnað. Þetta getum við líka séð gerast hér og farið úr vörn í byggðamálum í stórkostlega sókn.
Nú vill svo til, frú forseti, að Samtök sveitarfélaga á Austurlandi eru að funda í dag. (Forseti hringir.) Ég sendi þeim kærar kveðjur og hvatningu og vonast til þess að fá þau með okkur í lið í þessari baráttu. Þau hafa gefið merki um það fram að þessu. — Ef þess er einhver kostur, frú forseti, af því ég átti eftir að fara yfir ýmis tæknileg atriði, það fór of langur tími í aðdraganda, þá vil ég gjarnan skrá mig aftur á mælendaskrá.