leit að olíu og gasi.
Frú forseti. Það vill svo til að ég heyrði viðtal á útvarpsstöðinni Bylgjunni við hv. þm. Bergþór Ólason, sem talaði hér áðan, og þingmann Samfylkingarinnar, hv. þm. Víði Reynisson. Ég verð að segja alveg eins og er að afstaða Samfylkingarinnar sem þar birtist kom mér á óvart, afstaðan gagnvart þessu máli, og olli mér nokkrum áhyggjum. Þar var farið í þessar gömlu kenningar um að Ísland ætti bara að láta þetta eiga sig og ekki hreyfa við þessu en það gekk mjög erfiðlega að rökstyðja það. Jú, umhverfismálin eru ítrekað nefnd en eins og ég kom lítillega inn á hér áðan og gæti rakið í mun ítarlegra máli, og fæ kannski að gera það við 2. umræðu ef nefndin hleypir þessu máli áfram, þá væri þetta í raun jákvætt framlag til umhverfismála og öryggis á heimsvísu. Það liggur fyrir að þrátt fyrir miklar tilraunir til að auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa verður áfram aukin eftirspurn eftir olíu og gasi. Eftirspurn eftir orku á heimsvísu hefur aukist um að jafnaði 2% á ári áratugum saman og ekki útlit fyrir að það verði breyting þar á. Olía er líka notuð í svo fjölmargt annað, við hina ólíklegustu hluti sem fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir að þurfi olíu til að framleiða. Hún er í raun undirstaða nútímans og framfara og hefur verið það. Kannski finnum við nýjar leiðir í framtíðinni en þær eru ekki komnar og þá er betra að þróuð vestræn lýðræðisríki, sem gæta að öryggiskröfum og því hvernig framleiðslan fer fram og passa upp á kjör þeirra sem starfa við þetta, framleiði olíu heldur en að við eftirlátum öðrum að anna eftirspurninni. Ef þetta tækist hjá okkur og við færum að framleiða olíu og gas í miklum mæli, og ég ítreka það sem ég nefndi áðan um að áætlanir og rannsóknir bendi til þess að þarna séu gríðarlegar auðlindir, jafn miklar og í Noregshafi, þá gætum við selt gæðavottaða olíu og gas, íslenska olíu. Það er ekki blóðolía heldur lífræn íslensk olía og gas unnið á þann hátt að fyllsta öryggis sé gætt, fólk njóti góðra kjara sem við þetta vinnur og við um leið að leggja okkar af mörkum til áframhaldandi framfara í heiminum frekar en að styrkja stöðu einræðisríkja og eftirláta þeim að anna þessari eftirspurn.
Hér var nefndur Heiðar Guðjónsson sem af mikilli þrjósku eða eljusemi, lofsverðri þrjósku, heldur áfram að reyna að koma af stað olíu- og gasleit í íslenskri lögsögu. Heiðar nefndi einmitt að hann hefði ekkert komist áfram með málið á meðan óvissa ríkti um hvort Ísland væri á leiðinni í Evrópusambandið. Fjárfestar hefðu ekki viljað fara í verkefnið ef við sæjum fram á að Ísland yrði yfirtekið af Evrópusambandinu því að við þekkjum stefnu þess sambands, sem er samdráttur, minni og minni orkunotkun, minni og minni framleiðsla, og það væri víst til að koma í veg fyrir að við gætum nýtt þessar auðlindir okkar. En um leið og það mál var frá fóru mál á hreyfingu. Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er að það er svo mikilvægt, eins og við höfum getið um í fyrri ræðum, að íslensk stjórnvöld sýni það með atkvæðagreiðslu hér á þinginu, og svo ríkisstjórn eða önnur stjórnvöld í framhaldinu með úrvinnslunni, að við séum til í þetta og ætlum að vinna með og við hendum út af borðinu þessum furðulegu hugleiðingum um að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að banna rannsóknir á olíu- og gasauðlindum. Það myndi strax senda mjög skýr skilaboð og auka áhuga fjárfesta á að taka þátt í þessu verkefni því að fjárfestar líta auðvitað ekki hvað síst til þess lagaumhverfis sem þeir ganga inn í. Þótt þeir láti sig hafa eitt og annað í vanþróaðri löndum þegar olía og gas eru annars vegar þá vilja þeir þó ekki fjárfesta þar sem þeir geta átt á hættu að starfsemi þeirra verði einfaldlega bönnuð.
Í fyrri útgáfu þessarar tillögu var getið um sérstakt ríkisolíufélag, ekki félag til að ráðast í boranir eða hvað þá vinnslu heldur einfaldlega félag til að halda utan um starfsemina, til þess að vinna með þeim sem hefðu hug á rannsóknum og vinnslu þannig að menn hefðu einhvern til að tala við, einhvern mótaðila eða samstarfsaðila á Íslandi og félagið gæti svo haldið utan um afraksturinn. Hér er stjórnvöldum eftirlátið að meta hvernig það verði best gert en í öllu falli tel ég mjög mikilvægt að við sýnum í verki, annars vegar með því að samþykkja tillöguna og síðan stjórnvöld í framhaldinu, að það séu komnir, afsakið orðbragðið, frú forseti, einhverjir innviðir til að halda utan um þessi mál. Það þarf ekki að fela í sér stækkun báknsins. Það er hægt að forgangsraða einfaldlega með nýjum hætti en við þurfum að sýna skýr merki um það að við séum tilbúin og að mönnum sé óhætt að fara að bora.
Ég ætla aðeins, af því að ég hef svo lítinn tíma eftir, að lesa hérna beint upp úr greinargerð tillögunnar sem inniheldur heilmikið af upplýsingum. Þetta er ekkert leiðinlegt aflestrar, frú forseti, og ég hvet fólk til þess að lesa þessa áhugaverðu sögu sem fylgir í greinargerð tillögunnar. Þar er m.a. nefnt eftirfarandi, með leyfi frú forseta:
„Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafa unnið að jarðfræðilegum og jarðeðlisfræðilegum mælingum vegna undirbúningsvinnu fyrir olíuleitina. Rannsóknir olíuleitarfélaganna TGS og VBPR staðfestu á sínum tíma að olíu væri að finna á Drekasvæðinu.“
Ég ætla að endurtaka þessa síðustu setningu, frú forseti, svo ég skilji ekki við þetta mál þannig að fólk sé enn þá uppfullt af efasemdum um að við getum verið svo heppin að eiga slíkar lindir: Rannsóknir þessara olíufélaga staðfestu að olíu væri að finna á Drekasvæðinu.
„Terje Hagevang, helsti sérfræðingur Norðmanna um Jan Mayen-hrygginn, hefur sagt að þar sé að finna álíka verðmæti í olíu og gasi og finnast í Noregshafi. Samkvæmt rannsóknum Sagex-olíufélagsins frá 2006 er megnið af þeim svæðum sem líklegast er að geymi olíu- og gaslindir innan íslenskrar lögsögu.“
Svo eigum við 25% Noregsmegin ef þeir hefja vinnslu þar og þau 25% bara fáum við án þess að þurfa að gera nokkuð. En Norðmenn hafa verið að einbeita sér að öðru í bili þannig að við þurfum að taka af skarið, Íslendingar, þessi sjálfstæða þjóð, og setja þetta af stað í okkar lögsögu. Vísbendingarnar eru allar þarna og þær eru jákvæðar og, eins og ég nefndi áðan: Bara það að við þorum að fylgja þessu eftir og ýta þessu af stað með réttu hvötunum myndi strax hafa gríðarleg áhrif á byggðir, sérstaklega auðvitað á austan- og norðaustanverðu landinu, og skapa hér velferð fyrir fólk langt umfram það sem tekist hefur af hálfu þessarar ríkisstjórnar. Hún gæti þá hætt að skattpína fólk með þeim hætti sem hún hefur gert. Það þarf samt að passa upp á það, og það er sérstaklega fjallað um það, frú forseti, að ríkisstjórn má ekki eyða þessu öllu eins og þessi ríkisstjórn væri vís til að gera. Það þarf varnagla hvað það varðar þannig að farið sé vel með það sem út úr þessu kemur og þar eru til staðar ágætisfyrirmyndir eins og frá Noregi. Það eina sem vantar, frú forseti, er viljinn en hann er til staðar hjá Miðflokknum.