158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

hallarekstur ríkissjóðs og aðhald í ríkisfjármálum.

[13:37]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér er, já, nokkuð frjálslega farið með staðreyndir og það gerir hæstv. fjármálaráðherra. Það er staðreynd að á kosningaárinu 2024 voru einmitt vextir farnir að lækka. Hann skautar frjálslega fram hjá þeirri staðreynd. En það er annað sem hlýtur að valda fjármálaráðherra verulegum áhyggjum þessa dagana. Í fjárlagafrumvarpinu er enn verið að auka álögur á ferðaþjónustuna, atvinnugrein sem skilar gríðarlegum verðmætum og skatttekjum í ríkissjóð. Á sama tíma vofir yfir ótímabundið verkfall flugvirkja hjá Icelandair frá og með næsta miðvikudegi. Samtök ferðaþjónustunnar segja áhrifin þegar farin að koma fram; fyrirtæki um allt land hafa fengið fjölda afbókana og fyrirspurna um niðurfellingu og frestun ferða. Hér er undir ein stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar, tekjur þúsunda fyrirtækja og þar með auðvitað tekjur ríkissjóðs sem stendur nú þegar tæpur. Því vil ég spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hvernig blasir þessi staða við ríkisstjórninni frá sjónarhóli ríkisfjármálanna? (Forseti hringir.) Hvaða sviðsmyndir hefur ráðuneytið dregið upp um áhrif verkfallsins á tekjur ríkissjóðs og afkomu næsta árs?