hallarekstur ríkissjóðs og aðhald í ríkisfjármálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir síðari spurninguna. Það er vissulega rétt að verkfall flugvirkja mun hafa veruleg áhrif á ekki bara ferðaþjónustuna heldur fjölda atvinnugreina og einnig ferðafrelsi íslensku þjóðarinnar. Fylgjast þarf mjög nákvæmlega með hvernig því vindur fram. Aðilar eru enn þá við samningaborðið og það er þeirra að takast á við það verkefni að finna hljómgrunn og ná niðurstöðu. Ég bind enn þá vonir við að það takist. Það er hins vegar alveg rétt að þarna er um þjóðhagslega mikilvæga lífæð Íslands að ræða, ekki bara hvað varðar ferðaþjónustu heldur öll okkar tengsl við umheiminn sem og verulegan hluta af flutningum á t.d. ferskum fiski þannig að með þessari stöðu fylgist ríkisstjórnin nákvæmlega og grípur til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma.