fjármögnun Fljótaganga.
Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður ætti að beina fyrirspurn sinni varðandi fjármögnun til hæstv. fjármálaráðherra. Þetta er gert með þessum hætti og félagið er sjálfstætt félag og ætti að geta sótt sér fé líka á markaði. Varðandi Hvalfjarðargöng þá fara þau inn í félagið, þ.e. Hvalfjarðargöng II og fjármögnun á þeim. Ég skrifaði undir viljayfirlýsingu við framkvæmdastjóra Ganga og brúar í síðustu viku um það að þessar framkvæmdir fari inn í innviðafélagið og þá verða Hvalfjarðargöng þar undir. (Gripið fram í: … gömlu göngin?) Það á eftir að koma í ljós hvernig það verður fjármagnað en sú vegaframkvæmd verður greidd með gjöldum.