hlaðvörp og breyting á lögum um fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Já, það er þetta með dagskrárvaldið og áhrifavaldið og hvað það nú heitir en á endanum erum við með lög. Ég tek undir með hv. þingmanni að hlaðvörpin eru sérstaklega góð nýjung. Þar gefst fólki oft tækifæri til að tjá sig í lengra máli og færa rök fyrir sínum skoðunum án þess að tíminn sé af skornum skammti. Þetta er sannarlega góð viðbót og sannarlega geta hlaðvörp verið fjölmiðill þótt þau séu það e.t.v. ekki alltaf. En ég hef verið að skoða í mínu ráðuneyti hvort og þá hvaða reglugerðarheimildir eru til staðar í fjölmiðlalögunum til að skýra betur þessi atriði.
Ég vil að endingu segja að mér hefur alveg fundist mikilvægt að við höldum í heiðri hið almenna sjónarmið um að eftirlit sé ekki of íþyngjandi og megi ekki verða til þess að kæfa vaxtarbrodda í fæðingu. Þannig að ég mun horfa til þess líka þegar ég skoða þetta.