útlendingar.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður kom í lokin inn á það sem ég ætlaði líka að velta upp, þ.e. hvort það sé raunverulega tækt eða hvort hæstv. ráðherra hafi lagaheimild til þess að setja auglýsingu um verklag sem þetta. Það er nefnilega ekkert kveðið á um það í lögum um útlendinga að hægt sé að setja skilyrði sem beinlínis lúta að þessu atriði. Útlendingalögin eru mjög margorð og nokkuð ítarleg um verkferla og möguleika fólksins til að fá hér alþjóðlega vernd og afgreiðslu þessara mála. Þegar veitt er heimild til ráðherra til að setja reglugerðir t.d. þá er það skýrt afmarkað. Þannig að ég velti því fyrir mér, hv. þingmaður mun væntanlega taka þetta upp í nefndinni og velta því fyrir sér hvort það sé lagaheimild fyrir því að setja auglýsingu. Ég ætla ekki að fullyrða hér að það væri óeðlilegt að veita slíka lagaheimild. Ég held að málaflokknum sé mikil þægð í því að það sé sveigjanleiki að einhverju leyti í þessu. Ég segi það nú kannski bara af því að hæstv. ráðherra hefur tilhneigingu til að vera ekki í miklum aktívisma í þessum málaflokki en það kunna að vera alls konar einstaklingar sem sitja á þessum stóli þannig að ég held að það sé ekki ráðlegt að veita of mikið svigrúm til að víkja frá skýrum ákvæðum laganna í þessu efni. Þetta er eitt sem ég er að velta fyrir mér, með herskylduna. Svo er auðvitað hitt líka því tengt, að Evrópusambandið leggur áherslu á að það þurfi að taka ákvarðanir sem eru bestar fyrir Úkraínu. Hvað er best fyrir Úkraínu? Er það best fyrir Úkraínu að veita hér fólki sem ætti að vera að berjast fyrir þessu landi frítt fæði og húsnæði á Íslandi eða annars staðar í Evrópusambandinu eða ekki? Ég veit það ekki.