158. löggjafarþing — 9. fundur,  21. sept. 2026.

útlendingar.

97. mál
[15:33]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu og hann nefndi þarna einmitt að margir Úkraínumenn hafa myndað tengsl og komið börnum í skóla og við vitum hvernig það er. Það á náttúrlega við um alla sem koma hingað og búa hér til skemmri tíma en í greinargerðinni er einmitt nefnt að það sé mikilvægt að Ísland fylgi samræmdri áætlun Evrópusambandsins og samstarfsríkja Schengen hvað varðar þessa úkraínsku flóttamenn og skeri sig ekki úr hvað varðar framkvæmd annarra ríkja. Hér er sagt:

„Þá er mikilvægt að Ísland líkt og önnur ríki í Evrópu, vinni að því markmiði með úkraínskum yfirvöldum að þau endurheimti eigin ríkisborgara að stríði loknu.“

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig hann meti þetta í ljósi annarra ákvæða útlendingalaganna og svona hálfpartinn ádrátt sem mér hefur þótt greina í máli hæstv. ráðherra um að hér sé verið að breyta því að menn fái ekki varanlegt eða ótímabundið dvalarleyfi að loknu hópflóttamannaleyfinu en menn geti eftir sem áður sótt um slíkt og fengið það með vísan til tengsla við landið. Telur hv. þingmaður nógu mikið að gert til þess að mæta því sem segir hér, að vinna að því markmiði með úkraínskum yfirvöldum að þau endurheimti eigin ríkisborgara? Hvernig sér hv. þingmaður það fyrir sér í framtíðinni? Hefur hann trú á því að margir þeirra sem hingað eru komnir á grundvelli hópflóttadvalarleyfis snúi aftur til Úkraínu?