Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég stend hér í fyrsta sinn í þessum ræðustól. Það er mér mikill heiður að standa á sama stað og þeir fjölmörgu þingmenn sem hafa tekið þátt í því verkefni að byggja hér upp eitt fremsta samfélag veraldar. Ég tilheyri kynslóð sem hefur erft afrakstur þessarar vinnu; landið okkar, frelsi og velmegun. En ekkert frjálst velmegunarsamfélag er svo burðugt að ekki sé hægt að glutra því frá sér með vondum hugmyndum og lélegri verkstjórn. Þau gæði sem við erfðum eru ekki sjálfgefin. Sívaxandi ríki, aukin skattheimta til að fjármagna það og óþrjótandi freisting ráðamanna til að skerða frelsi einstaklingsins, rétt hans til að járna út eigin braut, getur á mjög skömmum tíma grafið undan allri þeirri góðu vinnu sem Íslendingar hafa unnið. Okkar góða samfélag krefst þess að við syndum stöðugt á móti straumnum, gegn eðli stjórnmálanna. Við þurfum ekki að þola stöðnun, við þurfum ekki að reka sömu stjórnmálin og við höfum alltaf gert. Við getum og við eigum að krefjast nýrra og stórhuga hugmynda sem auka hlut einstaklingsins, hins almenna Íslendings, á kostnað ríkisins. Með þeim orðum er ég ekki að mismæla mig. En það krefst þess að við stingum okkur til sunds á hverjum einasta degi og syndum á móti straumnum því íslenska verkefninu er aldrei lokið.